2505032
Tillaga:
Fulltrúar B-listans leggja til að gerð verði þjónustukönnun á þjónustu Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. á meðal leik- og grunnskóla á svæðinu.
Greinargerð:
Í lok síðasta kjörtímabils voru gerðar breytingar á skipuriti og samþykktum Félags- og skólaþjónutu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. Breytingin var gerð samhliða nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna 2021/86. Breytingin fól m.a.í sér að í stað tveggja stjórnenda byggðasamlagsins, félagsmálastjóra og forstöðumanns skólaþjónustu og algerlega aðskilinna eininga, þá var ábyrgð á stjórnun byggðarsamlagsins komið á eina hendi framkvæmdastjóra, sem hefur yfirumsjón með þjónustunni gagnvart aðildarsveitarfélögunum og ber ábyrgð á rekstri byggðarsamlagsins gagnvart stjórn.
Með breytingunni stóðu m.a. væntingar til þess að aukin samþætting þjónustunnar yrði til að auka gæði hennar og skilvirkni en jafnframt lögð áhersla á faglega sérhæfingu með deildarskiptingu innan þjónustunnar til að standa vörð um faglega þjónustu beggja málaflokka.
Ásta Brynjólfsdóttir
Lea Birna Lárusdóttir
Rafn Bergson
Samþykkt samhljóða.