24. fundur 09. apríl 2025 kl. 13:00 - 13:49 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir formaður
  • Ingibjörg Marmundsdóttir
    Aðalmaður: Rafn Bergsson
  • Lea Birna Lárusdóttir
  • Ásta Brynjólfsdóttir
  • Ágúst Leó Sigurðsson
  • Sandra Sif Úlfarsdóttir
  • Unnur Óskarsdóttir áheyrnarfulltrúi kennara
  • Unnur Lilja Bjarnadóttir áheyrnarfulltrúi foreldra
  • Guðni Ragnarsson
  • Harpa Sif Þorsteinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Birna Sigurðardóttir skólastjóri
  • Sólbjört Sigríður Gestsdóttir leikskólastjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Hús frítímans

2503005

Stefán Friðrik Friðriksson, byggðarþróunarfulltrúi, kemur á fund til að kynna starf byggðarþróunarfulltrúa og hugmynd að "húsi frítímans" fyrir nefndarfólki.
Fjölskyldunefnd þakkar Stefáni fyrir greinargóða kynningu.

2.Ákvörðun um könnun um lengd skólaárs í Hvolsskóla

2503048

Tillaga er um að kjörnir fulltrúar Fjölskyldunefndar kjósi um hvort að könnun um lengd skólaárs Hvolsskóla verði lögð fyrir foreldra og starfsmenn skólans, eða ekki.
Samþykkt með 6 atkvæðum, SKV, GR, SSÚ, IM, LBL, ÁB, að könnun um legnd skólaárs verði lögð fyrir, einn ÁLS á móti.

3.Skólaskjól lengri opnun hausti 2025

2504020

Undanfarinn ár hefur elsti hópur leikskólans hætt á leikskólanum þegar sumarfrí hefst og þau farið í skólaskjól frá ágúst þar til Hvolsskóli hefst. Ánægja virðist með þessa dagvistun meðal barna og foreldra og mæting góð hjá þessum hópi ár hvert.

Leiksskólastjóri leggur fram ósk um að þessi tilhögun verði áfram þ.e. að verðandi 1. bekkur komi ekki til baka í leikskólann Ölduna eftir sumarfrí leikskólans heldur nýti skólaskjól Hvolsskóla í ágúst ár hvert.
Samþykkt samhljóða opnun skólaskjóls fyrir verðandi 1. og 2. bekk frá hádegi 11. ágúst til skólasetningar.

4.Fjölmenningarráð - 11

2503004F

Lögð fram til kynningar fundargerð 11. fundar Fjölmenningarráðs.
  • 4.1 2503005 Hús frítímans
    Fjölmenningarráð - 11 The Multicultural Council thanks Stefán for the presentation and supports the idea of the Leisure House. The Council believes it would be a positive development for the entire community of Rangárþing eystra.
  • Fjölmenningarráð - 11 The Multicultural Council thanks Fræðslunet Suðurlands for the introduction and proposes that the Regional Council (Byggðarráð) offer this course to all employees of Rangárþing Eystra who do not have Icelandic as their first language.
  • Fjölmenningarráð - 11 Ongoing planning and organization for the Multicultural Festival.

Fundi slitið - kl. 13:49.