2602042
Deiliskipulagið tekur til nýrrar lóðar sem er 30.150 m² og fær heitið Fossengi. Lóðin er úr jörðinni Brú, L163848. Gerðir eru tveir byggingareitir innan Fossengis: á B1 verður heimilt að byggja 300 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 60 m² bílskúr. Á B2 verður heimilt að byggja fjögur 30 m² frístundahús með möguleika á rekstri.
Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 16. mars til og með 30. apríl 2026. Náttúruverndarstofnun veita ekki umsögn þar sem svæðið er ekki skilgreint með sérstaka vernd, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir á að fjalla þarf um fjölda gesta og fara fram á samráð varðandi fráveitu. Minjastofnun gerir ekki athugasemd. Vegagerðin gerir ekki athugasemdir en bendir á kröfur Vegagerðarinnar, m.a. að ef komi til frekari uppbyggingar skuli öðrum vera heimilt að samnýta vegtenginguna. Veðurstofa Íslands gerir athugasemd við tillöguna þar sem svæðið er á skilgreindu hættusvæði vegna mögulegra eldgosa og jökulhlaupa. Bætt hefur verið við í tillöguna að viðbragðsáætlun almannavarna vegna náttúruvá skuli vera aðgengileg bæði ábúendum og gestum. Skipulags- og umhverfisnefnd hvetur landeigendur að kynna sér áætlunina. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.