297. fundur 15. janúar 2026 kl. 08:15 - 08:58 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Rafn Bergsson varamaður
    Aðalmaður: Bjarki Oddsson
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.

1.Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2025

2601020

Lagður fram til viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2025. Viðaukinn er vegna þáttöku í Eyjagöngum að upphæð 15 milljónum og tekjur vegna hlutdeildar veitna í gatnagerð 85 milljónir og lækkun á fjárfestingu um 30 milljónir. Samtals hækkun á eiginfé um 100 milljónir.
Byggðarráð samþykkir viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2025 og leggur til við sveitarstjórn að hann verði samþykktur.

2.Ósk um kaup á landi; Vatnshóll land L163903

2601013

Lagt fram erindi Söru Pesancker þar sem óskað er eftir að kaupa land í eigu Rangárþings eystra.
Byggðarráð getur ekki orðið við ósk um kaup á landinu að svo stöddu. Nú stendur yfir vinna hjá sveitarfélaginu við uppmælingu, greiningu á þinglýstum skjölum ofl. vegna landeigna í dreifbýli sveitarfélagsins. Þegar þeirri vinnu er lokið verður tekin ákvörðun um ráðstöfun eignanna.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

3.Lóðaumsóknir í þjóðlendum; Júní 2025

2506012

Lóðaleigusamningur fyrir þjóðlendur í Rangárþingi eystra er lagður fram.
Byggðarráð samþykkir drög að lóðaleigusamningum í þjóðlendum og felur sveitarstjóra að undirrita þá fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

4.Samkomulag Festis og Rangárþings eystra; Viðauki

2601022

Lagður fram viðauki við samkomulag Festis og Rangárþings eystra vegna lóða að Austurvegi, Hvolsvelli.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka við samkomulag milli Festis og Rangárþings eystra og felur sveitarstjóra að undirrita hann f.h. sveitarfélagsins.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

5.Umsagnarbeiðni - þorrablót Félagsheimilinu Fossbúð - Búnaðarfélag A-Eyfellinga kt. 421286-1839

2601014

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um tækifærisleyfi fyrir þorrablóti þann 7. febrúar 2026 í félagsheimilinu Fossbúð.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

6.Umsögn um gistileyfi - Ormskot - Ormskot ehf kt. 621024-0270 - 12.01.2026

2601019

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs í flokki II, minna gistiheimili Sky Retreat Iceland að Ormskoti.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

7.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs; 252. fundur stjórnar - 12.01.2026

2601023

Lögð fram ti kynningar fundargerð 252. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Fundargerð lögð fram.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 08:58.