293. fundur
20. nóvember 2025 kl. 08:15 - 09:08 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
Árný Hrund Svavarsdóttirformaður
Tómas Birgir Magnússonaðalmaður
Lilja Einarsdóttir
Aðalmaður: Bjarki Oddsson
Starfsmenn
Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði:Margrét Jóna ÍsólfsdóttirSkrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð ef einhverjar eru.
1.Sigurhæðir - styrkumsókn - 12.11.2025
2511025
Lagt fram erindi Sigurhæða þar sem óskað er eftir styrks til rekstar Sigurhæða, úrræðis við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi.
Byggðarráð samþykkir styrkveitingu til Sigurhæða að upphæð 979.495 kr. Upphæðin er í samræmi við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
2.Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra 2026
2511038
Afgreiðslu frestað.
3.Umsögn um gistileyfi - Sperðill - Gámastöðin kt. 540789-5419 - 19.09.2025
2509062
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs í flokki II Tegund: C minna gistiheimili, The Black Barn.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
4.Umsögn um rekstrarleyfi - Steinar Beinakot 1 - Strangers ehf. kt. 500913-1180 - 14.11.2025
2511031
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs í flokki II Tegund: H frístundahús, Beinakot.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
5.Umsagnarbeiðni - gistileyfi - Stóra-Mörk 3
2501004
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs í flokki II Tegund: B stærra gistiheimili, Ferðaþjónustan Stóru Mörk.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
6.Skipulags- og umhverfisnefnd - 75
2510009F
Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 75. fundar Skipulags- og byggingarnefndar.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndakynna rekstrarleyfið fyrir frístundarbyggð F9.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 24. júlí til og með 10. september 2025. Náttúruverndarstofnun telur ekki þörf á að veita umsögn á tillöguna, Heilbrigðiseftirlitið og Vegagerðin gera engar athugasemdir en Brunavarnir Rangárvallasýslu leggja til að koma fyrir brunahana við fjölorkustöðina. Rarik, Veitur og Míla benda á lagnir á svæðinu en hönnun gatnagerðar fyrir Suðurlandsveg í gegnum Hvolsvöll gera ráð fyrir lögnum á svæðinu og er hluti af þeirri hönnunarvinnu sem er nú í vinnslu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofunnar til yfirferðar og afgreidd skv. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 22. ágúst til og með 3. október 2025. Vegagerðin og Veðurstofa Íslands gera ekki athugasemd við tillöguna. Brunavarnir Rangárvallasýslu benda á að gera þurfi ráð fyrir brunahana við hótelið. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir á að í athugasemdinni kemur fram að neysluvatn komi frá Veitum og að fráveita verði leidd í núverandi hreinsivirki ásamt því að benda á að hreinsivirki fyrir yfir 50 mann eru háð starfsleyfi. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að Rangárþing eystra er með umsjón um fráveitu, hitaveitu og öflun neysluvatns. Minjastofnun mælist til þess að inn í skilmálum deiliskipulagsins verði bætt ákvæði um það að tillöguuppdrættir að fyrirhugaðri stækkun skólahússins komi til umsagnar Minjastofnunar. Náttúruverndarstofnunar bendir á að svæðið er milli tveggja verndarsvæða sem bæði hafa hátt landslags- og ásýndargildi. Stofnun telur mikilvægt að meta byggingarmagn og hæð viðbyggingarinnar upp á heildarmynd svæðisins. Einnig er fjallað um bílastæði og gönguleiðir milli staða. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að verið er að vinna að samfelldri gönguleiðum á milli staða en sú tillaga verði lögð fyrir stofnunina en eigi ekki við umrædda breytingu. Rangárþing Ytra gerir engar athugasemdir við framlagða tillögu og Skaftárhreppur veitti ekki umsögn. Ásahreppur gerir ekki athugasemd en vísar málinu til landeigenda sem eru upptalin sveitarfélög á samt Rangárþingi eystra. Mýrdalshreppur mælist til þess að tillagan verði rædd á vettvangi landeigenda áður en að málið verði unnið frekar. Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir umsagnir Minjastofnunnar og Náttúruverndarstofnun, viðbyggingin skuli ekki draga athygli frá gamla Héraðskólanum sem hefur menningar- og sögulegt mikilvægi fyrir Skóga, bæta skuli við í greinargerð að Minjastofnun skuli samþykkja aðaluppdrætti fyrir viðbyggingu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunnar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 124/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér tillöguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér aðalskipulagsbreytinguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og auglýst samhliða deiliskipulagstillögu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér lýsinguna og leggur til við sveitarstjórn að hún verði send til umsagnaraðila og kynnt skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð drög að umsögn um mat á umhverfisáhrifum um neðansjávarvatnsleiðslu til Vestmannaeyja.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndakynna byggingarleyfið fyrir Heylæk 7 L234628, Heylæk 5 L234626, Heylæk 2 L226998 og Heylæk 1 L164015.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 75Skipulags- og umhverfisnefnd fellur frá grenndarkynningu og þar sem mat nefndarinnar að breytingin hefur ekki áhrif á hagsmuni aðliggjandi landeigna.
Fjölskyldunefnd - 26Fjölskyldunefnd felur formanni að koma á framfæri ábendingum frá nefndinni, til að skýra hlutverk sveitarfélagsins og skóla á svæðinu í skipuriti farsældarráðs á suðurlandi. Lagt fram til kynningar.
Ungmennaráð - 44Ákveðið var að skipta spurningum í 6 flokka. 1) Tómstundir og íþróttir (GB) 2) Skóli og Nám (HM) 3) Samgöngur, öryggi og aðstaða í nærumhverfi (FÞ) 4) Umhverfi og náttúra (GB) 5) Forvarnir (HM) 6) Félagslíf og vellíðan. (FÞ)
1. - 6. er boðaður kl 10:00 og 7. bekkur og eldri kl 11:30. Happdrætti, íþrótta og æskulýðsfulltrúi beðinn um að útvega vinninga og fá tilboð í pizzur sem þátttakendum verður boðið upp á.
9.Ungmennaráð - 45
2510015F
Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 45. fundar Ungmennaráðs.
Ungmennaráð - 45Barna- og ungmennaþing var haldið í Hvolnum. Í hópnum 1. - 6. bekkur mættu 45 börn og í hópnum 7. bekkur og eldri voru 20 þátttakendur. Boðið var upp á pizzur, ávexti, nammi og drykki. Niðurstöður þingssins verða kynntar fyrir sveitarstjórn og nefndum sveitarfélagsins.
10.Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 88
2510011F
Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 88. fundar stjórnar Brunarvarna Rangárvallasýslu.
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 88Margrét Jóna Ísólfsdóttir fjármálastjóri fer yfir rekstraryfirlit Brunavarna Rangárvallasýslu bs. frá janúar til loka september 2025. Reksturinn er í góðu jafnvægi.
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 88Margrét Jóna Ísólfsdóttir fjármálastjóri Rangárþings eystra fer yfir drög að fjárhagsáætlun Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir árið 2025. Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar aðildar sveitarfélaga.
11.Skógasafn; fundur stjórnar 24.10.2025
2511014
Lögð fram til umræðu og umræðu fundargerð stjórnar Skógasafns frá 24.10.2025.