289. fundur 02. október 2025 kl. 08:15 - 08:47 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.

1.HSU; Þátttaka í stefnumótunarvinnu

2509055

Heilbrigðisstofnun Suðurlands vinnur nú að mótun nýrra stefnu sem mun gilda frá árinu 2026 til ársins 2030.

Í kjölfar fundar SASS 5. september sl. var ákveðið að veita sveitarfélögum á starfssvæði stofnunarinnar sem og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að leggja fram ábendingar og hugmyndir sem nýtast við stefnumótunina.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma ábendingum á framfæri f.h. Rangárþings eystra. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

2.Bergrisinn; Aðalfundur 9. október 2025; Aðalfundarboð; Tilnefning fulltrúa

2509068

Bergrisinn bs. óskar eftir því að Rangárþing eystra tilnefni sína 5 fulltrúa til þátttöku á aðalfundi Bergrisans bs. sem haldinn verður fimmtudaginn 9. október kl. 13:00.
Byggðarráð tilnefnir eftirfarandi fulltrúa til þátttöku á fundinum. Aðalfulltrúar, Anton Kári Halldórsson, Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Tómas Birgir Magnússon, Bjarki Oddsson og Guri Hilstad Ólason.
Varafulltrúar, Árný Hrund Svavarsdóttir og Sigurður Þór Þórhallsson.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

3.Samningur um rekstur bílastæða við Skógarfoss 2025

2506050

Lögð fram drög að auglýsingu um rekstur bílastæða og salerna við Skógafoss.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi auglýsingu og felur sveitarstjóra að birta hana á miðlum sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.

4.Umsögn um tækifærisleyfi - Októberfest KFR - 04.10.2025

2509061

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Knattspyrnufélags Rangæinga um tækifærisleyfi vegna Októberfest sem haldinn verður í Hvolnnum, Hvolsvelli.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

5.Umsögn um gistiheimilið - Fagrahlíð - Hlíðin fagra ehf kt. 500821-1240 - 24.09.2025

2509072

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn um rekstrarleifi í flokki II ? B stærra gistiheimili, Fögruhlíð.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykk með þremur samhljóða atkvæðum.

6.SASS; 626. fundur stjórnar 05.09.2025

2509056

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 626. fundar stjórnar SASS.
Fundargerð lög fram til kynningar.

7.Félags- og skólaþjónusta - 93. fundur stjórnar

2509083

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 93. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu.
Fundargerð lög fram til kynningar.
Byggðarráð frestar afgreiðslu viðauka. Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

8.335. fundur Sorpstöðvar Suðurlands

2509084

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 335. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Fundargerð lög fram til kynningar.

9.336. fundur Sorpstöðvar Suðurlands

2509085

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 336. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Fundargerð lög fram til kynningar.

10.Samband íslenskra sveitarfélaga; 985. fundur stjórnar

2509086

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 985. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lög fram til kynningar.

11.Almannavarnarnefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu; Fundargerð 6

2509075

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 6. fundar Almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fjárhagsáætlun almannavarnarnefndar fyrir árið 2026 eins og hún er sett fram í 4 lið fundargerðar.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
Að öðru leyti er fundargerð lögð fram til kynningar.

12.Heilbrigðiseftirlit Suðurlands; Fundargerð 247

2509087

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 247. fundar stjórnar Heilbrigðiseftirlis Suðurlands.
Fundargerð lög fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 08:47.