288. fundur 18. september 2025 kl. 08:15 - 09:06 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Anton Kári Halldórsson Sveitarstjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.

1.Stóragerði 11; Kauptilboð

2509012

Fasteignin Stóragerði 11, Hvolsvelli sem er í eigu sveitarfélagsins var auglýst til sölu. Frestur til að skila inn tilboðum í eignina rann út þann 17. september 2025.
Alls bárust þrjú tilboð í eignina Stóragerði 11. Byggðarráð samþykkir tilboð Óskars Ólafs Björnssonar og Ásdísar Maríu Magnúsdóttur í eignina. Einnig er sveitarstjóra veitt umboð til að undirrita öll skjöl vegna sölu og veðsetningar fasteignarinnar.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

2.Samkomulag vegna uppbyggingar miðbæjarkjarna á Hvolsvelli

2311094

Lagt fram svarbréf VHT við bréfi Rangárþings eystra frá 5. september 2025 varðandi afturköllun lóða í miðbæ Hvolsvallar.
Á grundvelli samkomulags milli Rangárþings eystra og VHT ehf. frá 16. nóvember 2023 eru lóðaúthlutanir til VHT ehf hér með afturkallaðar. Lögfræðingi sveitarfélagsins er falið að vinna málið áfram.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

3.Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2026 - 05.09.2025

2509026

Samtök um Kvennaathvarf leita til Rangárþings eystra um styrk til að geta áfram tekið á móti konum og börnum sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis, og um leið veitt þeim þann mikilvæga stuðning sem þörf er á til að takast á við þær áskoranir sem upp koma þegar stigið er útúr ofbeldi. Óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2026 að fjárhæð kr. 200.000.

Byggðarráð samþykkir að veita umbeðin styrk að fjárhæð 200.000 kr. til samtaka um Kvennaathvarf.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

4.Félag fósturforeldra - styrkbeiðni - 09.09.2025

2509037

Félag fósturforeldra óskar eftir 50.000 kr. fjárstuðningi fyrir árinu 2026 til þess að þjónusta fósturforeldra og byggja áfram á nánu samstarfi við barnaverndarþjónustu.
Byggðarráð vísar erindinu til úrlausnar hjá sveitarstjóra í samvinnu við félagsþjónustu.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

5.Umsögn um rekstrarleyfi - Gamla fjósið - CoSe kt. 551124-0290 - 08.09.2025

2509027

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umögn vegna umsóknar CoSe ehf, um rekstur veitingastaðar í flokki II-A Veitingahús að Hvassafelli 3, 861 Hvolsvelli.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

6.Heilsueflandi samfélag - 31

2509003F

Fundargerð 31. fundar heilsueflandi samfélags staðfest í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Heilsueflandi samfélag - 31 Íþróttavikan verður með því sniði að allt það sem í boði er í sveitarfélaginu verður vel kynnt í samvinnu við félögin, íþrótta- og æskulýðsfullrúa og kynningar- og markaðaðsfulltrúa.
    Eins og undanfarin ár verða heilsueflandi fyrirlestrar, fyrir börn og fullorðna, jafnt og þétt í vetur og vor. Þetta verður gert í samvinnu við Hvolsskóla, félagsmiðstöðina og fleiri.

    Nefndarmönnum kynntur Lífsgæðadagurinn og hugmyndin bak við hann. Mikilvægt er að auglýsa hann vel til að fá sem flesta gesti.
  • Heilsueflandi samfélag - 31 Samfellustarfið kynnt. Nýjungar frá síðasta ári voru að fimleikar koma aftur inn og eins eru hestaíþróttir núna allan veturinn. Erfitt er að koma upp Samfellutöflu fyrir formenn íþróttafélagana ásamt íþrótta og æskulýðsfulltrúa án þess að eitthvað skarist.

    Stundatafla fyrir íþróttahúsið var líka rædd og ljóst er að erfitt að fyrir aðila sem ekki tengjast KFR eða Dímon að fá tíma í íþróttahúsinu. Þetta á sérstaklega við um Oldboys í fótbolta. Reynt er þó að finna tíma sem hentar fyrir þá.
  • Heilsueflandi samfélag - 31 Ólafur Örn íþrótta og æskulýðsfulltrúi sýndi vinnuskjal sem hann er með í vinnslu sem sýnir yfirlit yfir alla þá heilsueflandi félagsstarf og viðburði sem í boði er í sveitarfélaginu. Ýmislegt er í boði og verður það vel kynnt á næstu dögum, í tengslum við Íþróttaviku Evrópu, í gegnum samfélagsmiðla sveitarfélagsins.

7.Samband íslenskra sveitarfélaga; 983. fundur stjórnar - 29.08.2025

2509013

Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 983 lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

8.Samband íslenskra sveitarfélaga; 984. fundur stjórnar - 12.09.2025

2509053

Fundargerð lögð fram til kynningar.

9.Félags- og skólaþjónusta - 92. fundur stjórnar

2509011

Lögð fram til kynningar fundargerð 92. fundar stjórnar félags- og skólaþjónustu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

10.Katla jarðvangur; 82. fundur stjórnar -18.08.2025

2509043

Lögð fram til kynningar fundargerð 82. fundar stjórnar Kötlu jarðvangs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.Bergrisinn; 87. fundur stjórnar - 08.09.2025

2509052

Lögð fram til kynningar 87. fundargerð stjórnar Bergrisans bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.Efni Áhrif 16. gr. laga nr. 551992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem er bótaskyld hjá NTÍ

2509040

Lagt fram til kynningar erindi Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Lagt fram til kynningar.

13.Njálufélagið - þakkir

2509023

Lagt fram til kynningar þakkarbréf vegna Njáluhátíðar frá Njálufélaginu.
Lagt fram til kynningar. Byggðarráð þakkar Njálufélaginu fyrir sitt framlag til hátíðarinnar og tilnefnir markaðs- og kynningarfulltrúa Rangárþings eystra sem sinn fulltrúa til komandi samstarfs við félagið.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 09:06.