279. fundur 22. maí 2025 kl. 08:15 - 09:07 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Rafn Bergsson
    Aðalmaður: Bjarki Oddsson
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundargerð.
Formaður óskar eftir að fella eitt mál af dagssrká fundar, mál nr 5 2505041 Umsögn um starfsleyfi - Drangshlíð 1 - flokkur IV - Hótel Drangshlíð ehf - 13.05.2025.

1.Deiliskipulag - Hallgerðartún, fjölgun íbúða

2505017

Lóðarhafi óskar eftir að fjölga íbúðum við Hallgerðartún á lóðum 35-41.
Byggðarráð hafnar beiðni um breytingu deiliskipulags vegna fjölgun íbúða í Hallgerðartúni 35-41. Nú þegar hefur verið samþykkt að ráðast í gatnagerð Bergþórugerðis á næstu mánuðum og mun þar opnast á lóðir þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttri húsagerð.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

2.Glamping ehf; Goðaland; Fyrirspurn um leigu sumar 2025

2505020

Lagt fram erindi Glamping ehf þar sem óskað er eftir áframhaldandi sumarleigu ( 1. júní til 31. àgúst) á félagsheimilinu Goðalandi.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið. Að mati byggðarráðs gekk sú útfærsla sem viðhöfð var á leigu á Goðalandi sl. tvö sumur vel. Hins vegar sér byggðarráð sér ekki fært að gera samning um útleigu nema til eins sumars í senn og þá með engum skuldbindingum er varðar forleigu eða forkaupsrétt. Sveitarstjóra falið að vinna að samkomulagi milli aðila og leggja fyrir byggðarráð til staðfestingar.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

3.Ósk um vilyrði fyrir lóðum; Vistarvegur 2, 4, 6, 8

2505036

Lagt fram erindi Fjallfje ehf þar sem óskað er eftir vilyrði fyrir lóðum 2,4 og 6,8 á Vistarvegi að Skógum. Einnig er óskað eftir heimild til að vinna deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðirnar þar sem gert verður ráð fyrir raðhúsi á tveimur hæðum.
Byggðarráð samþykkir veitingu vilyrðis fyrir lóðunum til handa Fjallafje ehf. Vilyrðið er veitt til sex mánaða. Ósk um heimild til deiliskipulagsgerðar er vísað til afrgreiðslu skipulags- umhverfisnefndar.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

4.Umsögn um starfsleyfi - Grímsstaðir cottage - flokkur II - LB rekstrarþjónusta ehf - 02.05.2025

2505042

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokkur II að Grímsstöðum.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

5.Endurskoðun - úthlutunarreglna Rangárþings eystra

2410062

Lagðar fram til samþykktar endurskoðaðar úthlutunarreglur lóða í Rangárþingi eystra. Málið var áður á dagsskrá byggðarráðs á 272. og 278. fundum byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir með þremur samhjlóða atkvæðum framlagðar úthlutunarreglur og vísar þeim til samþykktar í sveitarstjórn.

6.Endurskoðun - gatnagerðargjöld

2410061

Lögð fram til samþykktar endurskoðuð samþykkt um gatnargerðargjöld í Rangárþingi eystra. Málið var áður á dagsskrá byggðarráðs á 272. og 278. fundum byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir með þremur samhljóða atkvæðum samþykkt um gatnargerðargjöld í Rangárþingi eystra og vísar þeim til samþykktar í sveitarstjórn.

7.Ungmennaráð - 41

2504005F

Lögð fram til umræðu og samþykkis fundargerð 41. fundar Ungmennaráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • 7.1 2411011 Ungmennaþing 2024
    Ungmennaráð - 41 Barna- og ungmennaþing var haldið í Hvolnum laugardaginn 18. janúar. Að þinginu stóðu Ungmennaráð Rangárþings eystra ásamt íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Allt stóð þingið yfirí þrjá klukkutíma og mættu um 50 börn og ungmenni til skrafs og ráðagerða.
    Ungmennaráð gat loksins hist og farið yfir niðurstöður og mun kynna þær fyrir sveitarstjórn.

    Ungmennaráð tók saman nokkur atriði sem sneru að þeim málum sem komu fjallað var um á barna- og ungmennaþingi. Í íþrótta- og samfellustarfi var kallað eftir fleiri íþróttum til að stunda svo sem handbolta, fimleika, pílukast og klifur en einnig annað starf í samfellu sem eru ekki íþróttir t.d. smíða, sauma eða leiklist.
    Samgöngur milli Hvolsvallar og Selfoss með viðkomu á Hellu mættu vera á hentugri tíma til þess að börn og ungmenni kæmust á æfingar á Selfossi/Hellu fljótlega eftir skóla. Félagsmiðstöðin fékk hrós en það mætti kynna starfið þar betur. Þar væri líka hægt að hafa annað píluspjald. Þegar kom að umhverfi og skipulagi þá var ósk um hjólastíga, gervigrasvöll, körfuboltavöll, viðhaldi á sparkvelli er ábótavant og betri lýsingu t.d. á göngustígnum bak við Hvolinn og í skóginum á leiðinni í kirkjuna. Í Hvolsskóla mættu vera fjölbreyttari ávextir, miðakerfi þegar beðið er eftir aðstoð í tímum, vilja hafa verkefnið ,,Jól ískókass" og að börn með erlent tungumál megi tala það sín á milli og svo vantar hurð á 7. bekkjar stofuna.
  • Ungmennaráð - 41 Umræða um félagsmiðstöðina og mögulegt ungmennahús í sumar. Lagt var til að bjóða upp á opnun t.d. einu sinni eða tvisvar í mánuði fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára þar sem þau geta komið leikið borðtennis, pílu, pool eða playstation. Það vantar smá aðstöðu og afþreyingu fyrir hluta af þessum aldri og því tilvalið að prófa opnun sem gæti svo haldið áfram í næsta vetur.
    Íþrótta- og æskulýðsfulltrú falið að kanna þennan möguleika.

    Einnig leggur ungmennaráð til að aldurstakmark á Kjötsúpuballið verði 16 ára og eldri, þe. þau sem lokið hafa 10. bekk. Kjötsúpuhátíðin er fjölskylduhátíð og því ættu aldurtakmörkin að vera rýmri heldur en verið hefur. Það eru engin böll í sveitarfélaginu fyrir ungmenni og á svona hátíð eru flestir á svæðinu og því gaman að hafa ball fyrir ungmenni sem annars reyna ítrekað að ,,smygla" sér inn. Nú hefur áfengi verið selt bæði fimmtudagskvöld og laugardagskvöld og allir velkomnir en svo þegar ballið byrjar kl.23.00 þá er komið aldurstakmark og ungmenni óheimilt að vera á ballinu.
    Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að kanna þetta betur.

8.Markaðs- og menningarnefnd - 27

2505003F

Lögð frma til umræðu og staðfestingar fundargerð 27. fundar Markaðs- og menningarnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 27 Umræður um viðburði tengt hjólakeppninni. Starfsmanni nefndar falið að vinna áfram að málinu.

    Samþykkt samhljóða.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 27 Markaðs- og menningarnefnd ítrekar bókun frá 11.04.2023:

    "Markaðs- og menningarnefnd hvetur sveitarstjórn til að setja kraft í að finna hentugt landsvæði fyrir iðnað í Rangárþingi eystra sem allra fyrst. Það er brýn nauðsyn að slíkt svæði sé til staðar fyrir atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu."

    Samþykkt samhljóða
  • Markaðs- og menningarnefnd - 27 Stefán Friðrik og Sigurmundur fara yfir það sem búið er að framkvæma síðustu ár í málum sem tengjast ferðamálastefnu Rangárþings eystra.
    Nefndin leggur til að Markaðsstofa suðurlands komi á næsta fund og kynni handbók um uppbyggingu ferðamannastaða.

    Samþykkt samhljóða
  • Markaðs- og menningarnefnd - 27 Lagt fram til kynningar.

9.Arnardrangur hses; 22. stjórnarfundur 07.04.2025

2505044

Lögð fram til kynningar fundarðgerð 22. fundar stjórnar Arnardrangs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

10.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs; 247. fundur stjórnar - 05.05.2025

2505012

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 247. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.SASS; 619. fundur stjórnar 07.03.2025

2505059

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 619. fundar stjórnar SASS.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.SASS; 620, fundur stjórnar 19.03.2025

2505058

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 620. fundar stjórnar SASS.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

13.SASS; 621, fundur stjórnar 04.05.2025

2505057

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 621. fundar stjórnar SASS.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

14.SASS; 622, fundur stjórnar 09.05.2025

2505060

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 622. fundar stjórnar SASS.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

15.333. fundur Sorpstöðvar Suðurlands 25.04.2025

2505062

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 333. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

16.Byggðarsafnið í Skógum; ársreikningur 2024

2505024

Lagður fram til kynningar ársreikningur Byggðarsafnsins í Skógum.
Lagt fram til kynningar.

17.Samráðsgátt; Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029

2505050

Sóknaráætlun Suðurlands hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.

18.Kynningarfundur um stöðu brennslumála á Suðurlandi

2505061

Lagt fram fundarboð Sorpstöðvar Suðurlands um stöðu brennslumála á Suðurlandi.
Lagt fram til kynningar.

19.Stjórnskipulag aðgerðarstjórnar Suðurlandi; Almannavarnarnefnd

2505063

Lögð fram stjórnskipulagsáætlun fyrir aðgerðarstjórn á Suðurlandi sem segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í umdæminu. Markmið stjórnskipulagsáætlunar og atvikaáætlana er ætlað að

tryggja skipulögð fyrstu viðbrögð í umdæminu.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:07.