278. fundur 08. maí 2025 kl. 08:15 - 09:29 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum ef einhverjar eru.
Þóra Björg Ragnarsdóttir kemur til fundar undir lið 1 til 3.

1.Endurskoðun - úthlutunarreglna Rangárþings eystra

2410062

Lagðar fram endurskoðaðar úthlutunarreglur lóða í Rangárþingi eystra. Málið var áður á dagsskrá byggðarráðs á 272. fundi byggðarráðs.
Byggðarráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að klára endurskoðun reglanna og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

2.Endurskoðun - gatnagerðargjöld

2410061

Lögð fram til umræðu og samþykktar endurskoðuð samþykkt um gatnargerðargjöld í Rangárþingi eystra. Málið var áður á dagsskrá byggðarráðs á 272. fundi byggðarráðs.
Byggðarráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að klára endurskoðun samþykktar um gatnagerðargjöld og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

3.Auglýsing um lóðaúthlutanir - Þjóðlendur

2401026

Lögð fram til umræðu og samþykktar auglýsing um lóðaúthlutun á þegar byggðum lóðum á þjóðlendum í Rangárþingi eystra. Málið var áður á dagsskrá byggðarráðs á 274. fundi byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir auglýsingu um lóðaúthlutun á þegar byggðum lóðum á þjóðlendum í Rangárþingi eystra og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að auglýsa úthlutun með áberandi hætti.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.
Þóra Björg Ragnarsdóttir fer af fundi.

4.Styrkbeiðni vegna Landsfundar Upplýsingar 16. - 17. okt 2025

2504012

Löðg fram styrkbeiðni vegna Landsfundar Upplýsingar á Selfossi 16. og 17. október 2025
Byggðarráð samþykkir að styrkja Landsfund Upplýsingar um 100.000 krónur.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl:

5.,,Bara tala courses - introduction from Fræðslunetið

2502051

Lagt fram minnisblað vegna endurnýjunar á áskrift sveitarfélagsins að "Bara tala" og námsskeiðs fyrir starfsmenn sveitarfélagsins í notkun á appinu.

Fjölmenningarnefnd hefur þegar fjallað um málið og eftirfarandi bókun var samþykkt:

The Multicultural Council thanks Fræðslunet Suðurlands for the introduction and proposes that the Regional Council (Byggðarráð) offer this course to all employees of Rangárþing Eystra who do not have Icelandic as their first language.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að endurnýja áskrift sveitarfélagsin að "Bara tala" og námskeiðis fyrir starfsmenn sveitarfélagsins í notkun á appinu.

6.Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands - endurnýjun samnings

2504067

Lagt fram erindi Háskólafélags Suðurlands þar sem óskað er eftir endurnýjun á samningi vegna Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands til næstu þriggja ára
Byggðarráð samþykkir að endurnýja samning vegna Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands til næstu þriggja ára. Árlegt framlag til sjóðsins verði 50.000 kr.

7.Syndis; samningur um netöryggi

2505009

Lögð fram kynning og drög að samningi milli Rangárþigns eystra og Syndis um netöryggi og vöktun á forritum og tæknibúnaði sveitarfélagsins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Syndis.

8.Umsögn um rekstrarleyfi - Grímsstaðir cottage - LB rekstrarþjónusta ehf - 02.05.2025

2505002

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokkur II að Grímsstöðum.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.

9.Umsögn um rekstrarleyfi - Austurvegur 14, kaffihús - Lava veitingar ehf - 23.04.2025

2504071

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs veitingastaðar í Flokki II ? E Kaffihús, í húsnæði Lava.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.

10.Skipulags- og umhverfisnefnd - 65

2503010F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 65. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 65 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að landskiptin verði samþykkt ásamt hinu nýju staðföngum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 65 Deiliskipulagstillaga var auglýst frá 18. september til og með 31. október 2024. Umsagnir bárust frá umsagnarðilum sem og athugasemdir frá næstu nágrönnum. Framkvæmdaraðili óskar eftir að breytt tillaga verði auglýst aftur í ljósi umsagna.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst aftur skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 65
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 65

11.Skipulags- og umhverfisnefnd - 66

2504004F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 66. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við að framkvæmdarleyfi verði veitt með fyrirvara um að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í B-deild.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdarleyfi verði veitt.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Við yfirferð Skipulagsstofnunar, dags. 9. apríl 2025, er gerð athugasemd við aðalskipulagsbreytinguna, að með breytingunni sé sveitarfélagið að slíta gott og úrvalslandbúnaðarland og að sveitarfélagið skuli taka afstöðu til 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Með tilliti til stefnu ríkisins um að binda kolefni tekur sveitarfélagið jákvætt í að skógrækt verði heimiluð á svæðinu. Nefndin telur að breytingin hafi ekki áhrif á nálægð landbúnaðarsvæði og nýtingu þeirra. Einnig er takmörkuð eftirspurn eftir landi til kornræktar auk þess að hægt er að endurheimta land til jarðræktar eftir skógrækt með tilkostnaði. Skipulags- og umhverfisnefnd telur að stærð svæðisins sé eftir þörf og ítrekar að framkvæmdin sé áfangaskipt og að sveitarfélagið hafi heimild á að úttekt fari fram áður en framkvæmdir hefjast og því ljóst að ræktunin sé til nokkurra ára.
    Samþykkt af BO, TBM, EE, SÞÞ og GO. GHO situr hjá við afgreiðslu málsins. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði send aftur til Skipulagsstofnunar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með Vegagerðinni og leggur til við sveitarstjórn að farið verði fram á að samgöngumat fyrir svæðið, frá Markarfljóti til og með Sandhólmavegi verður unnið samhliða deiliskipulagstillögum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með Vegagerðinni og leggur til við sveitarstjórn að farið verði fram á að samgöngumat fyrir svæðið, frá Markarfljóti til og með Sandhólmavegi verður unnið samhliða deiliskipulagstillögum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að láta vinna húsakönnun á svæðinu.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 17. febrúar til og með 3. apríl 2025. Umsagnri bárust frá lögbundunum umsagnaraðilum en engar athugasemdir voru gerðar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu og leggur til við sveitarstjórnað tillagan verði kynnt fyrir lóðarhöfum og auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Deiliskipulagsbreytingin var kynnt fyrir lóðarhöfum, send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 17.febrúar til og með 3. apríl 2025. Brunavarnir Rangárvallasýslu benda á að burðaþol aðkomuleiða skuli vera 32 tonn og að trjágróður skuli ekki hindra aðkomuleiðir. Vegagerðin bendir á að æskilegt er að hafa nýja vegtenginu eins fjarri Hringvegi og kostur er og að túntengingin á móti er óæskileg og það þurfi að loka túntengingunni með hliði og fjarlægja plan. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerir ekki athugasemd við tillöguna. Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur leggja til að bæta útsýni að Skógafossi með grisjun á skógrækt við tjaldsvæðið. Rangárþing ytra gerir ekki athugasemd við tillöguna.
    Náttúruverndarstofnun fagnar áformunum en bendir á að tillaga um afmörkun jaðarsvæðis þyrfti að koma fram á uppdrættinum, hönnun bygginga skuli taka tillit til sérstakrar verndar við Skógafoss. Stofnunin fjallar einnig um mengun út frá fráveitu, efnaval við þrif, vatnaáæatlun 2022-2027 og að lokum er óskað eftir samvinnu við sveitarfélagið um endurheimt náttúrulegrar ásýndar innan marka friðlýsta svæðisins.
    Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með ofangreindum umsögnum, túntengingin verður lokuð og læst en bendir á að umrætt plan í umsögn Vegagerðarinner er rúllustæði. Nefndin tekur undir að áframhaldandi samvinna sveitarfélagsins og Náttúruverndarstonunar skuli miðast að endurheimt friðlýstasvæðisins.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 66 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.

12.Fjölskyldunefnd - 24

2503007F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 24. fundar Fjölskyldunefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

13.Markaðs- og menningarnefnd - 26

2504003F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 26. fundar Markaðs- og menningarnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 26 Markaðs- og menningarnefnd felur Markaðs- og kynningarfulltrúa og Byggðaþróunarfulltrúa að fara yfir núverandi ferðamálastefnu og gera samantekt á því sem hefur verið gert fyrir næsta fund nefndarinnar.
  • 13.2 2503034 Víkingurinn 2025
    Markaðs- og menningarnefnd - 26 Markaðs- og menningarnefnd þakkar erindið en leggur til að ekki verði tekið þátt í þessu verkefni í ár.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 26 Markaðs- og menningarnefnd fagnar framtakinu og óskar skipuleggjendum góðs gengis.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 26 Markaðs- og menningarnefnd þakkar þeim aðilum sem sóttu um fyrir áhugann. Starfsmanni skrifstofu er falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræðu fundarins.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 26 Ýmsar hugmyndir ræddar, starfsmanni skrifstofu falið að afla frekari upplýsinga og áframhaldandi umræða á næsta fundi.

14.Samband íslenskra sveitarfélaga; 973. fundur stjórnar 14.03.2025

2504036

Lögð fram til kynningar fundargerð 973. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

15.Samband íslenskra sveitarfélaga; 974. fundur stjórnar 19.03.2025

2504037

Lögð fram til kynningar fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

16.Samband íslenskra sveitarfélaga; 975. fundur stjórnar 20.03.2025

2504038

Lögð fram til kynningar fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

17.Samband íslenskra sveitarfélaga; 976. fundur stjórnar

2504048

Lögð fram til kynningar fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

18.Samband íslenskra sveitarfélaga; 977. fundur stjórnar 11.04.2025

2504076

Lögð fram til kynningar fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

19.Samband íslenkra sveitarfélaga; 978. fundur stjórnar - 30.04.2025

2505007

Lögð fram til kynningar fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

20.Bergrisinn; 83. fundur stjórnar - 24.03.25

2504049

Lögð fram til kynningar fundargerð 83. fundar stjórnar Bergrisans.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

21.Héraðsráð Rangæinga; Fundargerð 15.04.25

2504051

Lögð fram til kynningar fundargerð Héraðsráðs Rangæinga frá 15. apríl 2025.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

22.Heilbrigðiseftirlit Suðurlands - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025 og fundargerð 244

2505006

Lögð fram fundargerð 244. fundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og endurskoðuð fjárhagsáætlun 2025.

Fundargerð lögð fram til kynningar. Byggðarráð leggur til að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun Rangárþings eystra vegna endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2025.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

23.Úthlutun úr Landbótasjóði 2025

2503073

Lagt fram til kynningar bréf Lands og skóga þar sem tilkynnt er um úthlutun í Landbótasjóði 2025.
Byggðarráð þakkar fyrir veittan styrk úr Landbótasjóði fyrir árið 2025. Að öðru leiti er erindið lagt fram til kynningar.

24.Nýjar samþykktir EBÍ- breytingar á kjöri í fulltrúaráð EBÍ

2504014

Lögð fram til kynningar fundargerð fulltrúaráðsfundar Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands frá 19. mars s.l. og upplýsingar um breytingar á samþykktum félagsins þess eðlis að eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar eiga öll aðildarsveitarfélög EBÍ að kjósa í fulltrúráð í stað héraðsnefnda o.fl.



Byggðarráð vísar málinu til næstu endurskoðunar á samþykktum sveitarfélagins.

25.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2025

2502050

Lagt fram til kynningar 271. mál Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun).

og 272. mál Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum).

Lagt fram til kynningar.

26.Geysir; Skýrslur og ársreikningur 2024

2504052

Lögð fram til kynningar ársreikningur og ársskýrsla hestammanfélagsins Geysis.
Lagt fram til kynningar.

27.Atviksáætlun vegna hópslysa; Almannavarnarnefnd

2504061

Lögð fram til kynningar Atviksáætlun vegna hópslysa sem byggð er á stjórnskipulagi aðgerðastjórnar á Suðurlandi og styðst við lög sem þar eru tilgreind. Hún er unnin af lögreglustjóranum á Suðurlandi og almannavarnarnefndum í umdæminu.
Lagt fram til kynningar

28.Ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands - 25.03.2025

2504070

Lögð fram áliktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands þar sem fram kemur ábending til sveitarstjórna að græn svæði í þéttbýli séu mikilvæg lýðheilsu fólks. Jafnframt minna á mikilvægi þess að sveitarfélög nýti sér sérþekkingu skógfræðinga til að styðja við uppbyggingu grænna svæða í þéttbýli.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umhverfis- og garðyrkjustjóra sveitarfélagsins.

29.Héraðssambandið Skarphépinn - bréf - ársskýrsla - 02.05.2025

2505004

Lögð fram til kynningar ársskýrsla HSK.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:29.