277. fundur 25. apríl 2025 kl. 12:00 - 12:55 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð ef einhverjar eru.

Fundinn sitja auk fundarmanna undir lið 1, Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Lilja Einarsdóttir, Rafn Bergsson.
Undir liðnum koma allir fulltrúar sveitarstjórnar til fundar til að hlýða á yfirferð ársreiknings. .

1.Ársreikningur Rangárþings eystra 2024; Fyrri umræða

2504066

Margrét Jóna Ísólfsdóttir, skrifstofu og fjármálastjóri kynnir niðurstöður ársreiknings fyrir fundarmönnum.
Lagt er til að vísa ársreikningi 2024 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
Fulltrúar sveitarstjórnar, SKV, LE og RB fara af fundi.

2.Umsókn um styrk -- Landgræslustyrkur á Almenningum 2025

2504047

Lagt fram erindi landeigenda á Almenningum þar sem óskað er eftir styrk til landsgræðslu á Almenningum.
Byggðarráð samþykkir að veita styrk til landgræðslu á Almenningum að upphæð 300.000.- eins og undanfarin ár.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

3.Umsókn um lóð - Hallgerðartún 24

2504001

Ásdís María Magnúsdóttir óskar eftir því að fá úthlutað einbýlishúsalóðinni Hallgerðartún 24, L236266.
Byggðarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar að uppfylltum hæfisskilyrðum umsækjanda.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

4.Umsókn um lóð - Hallgerðartún 26

2504003

Óskar Ólafur Björnsson óskar eftir því að fá úthlutað einbýlishúsalóðinni Hallgerðartún 26, L236267.
Byggðarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar að uppfylltum hæfisskilyrðum umsækjanda.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

5.Umsögn um rekstrarleyfi - Lambalækur lóð - GT 1 ehf - 01.04.2025

2504005

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar GT 1 ehf um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, Lambalæk Fljótshlíð.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

6.Umsögn um gistileyfi - Yzta- Bæli Black Beach Farm House - Arnardóttir ehf - 09.04.2025

2504035

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Arnardóttur ehf um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, Ysta-Bæli.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

7.Aðalfundarboð Skeiðvangs 2025

2504054

Lagt fram aðalfundarboð Skeiðvangs ehf. Fundurinn verður haldinn verður 29. apríl 2025 í Skeiðvangi.
Lagt fram til kynningar.

8.Rangárhöllin aðalfundur - 29.04.2025

2504056

Lagt fram aðalfundarboð Rangárhallarinnar. Fundurinn verður haldinn verður 29. apríl kl 19.00 í Rangárhöllinni.
Lagt fram til kynningar.

9.Rangárbakki þjóðarleikvangur íslenska hestsins ehf - aðalfundarboð

2504057

Lagt fram aðalfundarboð Rangárbakka. Fundurinn verður haldinn verður 29. apríl kl 20:30 í Rangárhöllinni.
Lagt fram til kynningar.

10.Landskerfi bókasafna - aðalfundur 06.05.2025

2504013

Lagt fram aðalfundarboð Landskerfi bókasafna. Fundurinn verður haldinn verður 6. maí kl 14.00 að Katrínartúni 4.
Byggðarráð tilnefnir Elísu Elíasdóttir til setu á fundinum fyrir hönd sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:55.