222. fundur 01. desember 2022 kl. 08:15 - 09:05 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð, svo er ekki.
Eitt mál á dagskrá var ranlega nefnt. Mál númer 6 nefnt Héraðsnefnd Rangæinga; 2. fundur 24.11.2022 en hér eftir nefnt Héraðsráð Rangæinga; 2. fundur 24.11.2022.

1.Ósk um tilnefningu fulltrúa í vatnasvæðanefnd 2022

2211080

Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningu Rangárþings eysta í vatnasvæðanefnd í samræmi við lög nr. 36/2011 og reglugerð nr. 935/2011 um stjórn vatnamála.
Byggðarráð tilnefnir Anton Kára Halldórrson, sveitarstjóra í vatnasvæðanefnd og leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki bókunina.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

2.Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2022

2211081

Lagður fram til umfjöllunar og samþykktar viðauki 4 um rekstur og viðauki 5 við fjárfesingar við fjárhagsáætlun 2022
Byggðarráð samþykkir, fyrir sitt leiti viðauka 4 og viðauka 5 með þremur samhjóða atkvæðum og leggur til við sveitarstjórn að hann verði samþykktur.

3.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs; 225

2211079

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 225. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Lögð fram til umræðu og samþykktar gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt.
Fundargerð lögð fram.

4.315. fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands

2211071

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 315. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Fundargerð lögð fram.

5.Stjórnarfundur Hulu bs. 23.11.2022

2211072

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð fundar stjórnar Hulu bs frá 23. nóvember 2022.
Fundargerð lögðf fram.

6.Héraðsráð Rangæinga; 2. fundur 24.11.2022

2211073

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 2. fundar stjórnar Héraðsnefndar Rangæinga.
Fundargerð lögð fram.

7.SASS; 589. fundur stjórnar

2211074

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 589. fundar stjórnar SASS.
Fundargerð lögð fram.

8.21. fundur; Svæðisskipulagsgerð fyrir Suðurhálendið

2211076

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 22. fundar um svæðisskipulagsgerð fyrir Suðurhálendið.
Fundargerð lögð fram.

9.Aðalfundur Vottunarstofunnar Túns ehf 2022; Fundargerð

2211054

Lögð fram til kynningar og umræðu fundargerð aðalfundar Vottunarstofunnar Túns ehf 2022.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:05.