286. fundur 18. desember 2025 kl. 10:00 - 10:30 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Eignaskiptasamningur - Flugtún 5

2512029

Eigna­skipta­yf­ir­lýs­ing­ar lögð fram til yfirferðar fyrir Flugtún 5 í Fljótshlíð.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða eigna­skipta­yf­ir­lýs­ing­u.

2.Merkjalýsing - Afmörkun lóða við Austurveg

2511096

Lögð er fram merkjalýsing fyrir lóðir við Austurveg í gegnum Hvolsvöll.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

3.Umsögn um rekstrarleyfi- Sólarátt - Sámsstaðir 1 lóð 10 - 30.07.2025

2507070

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn skipulags- og byggingarembættis Rangárþins eystra vegna rekstrarleyfisumsóknar að Sámsstöðum 1, lóð 10, L203315.
Rekstrarleyfisumsóknin var grenndarkynnt skv. skilmálum aðalskipulags Rangárþing eystra og athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisnefnd bókaði eftirfarandi:
Í ljósi athugasemda sem bárust við grenndarkynningu veitir skipulags- og umhverfisnefnd neikvæða umsögn er varðar umsókn um rekstrarleyfi að Sámsstöðum 1, lóð 10. Umrætt svæði er skv. gildandi aðalskipulagi Rangárþings eystra frístundahúsasvæði þar sem er öllu jafna ekki heimilt að vera með rekstur.

4.Umsögn um starfsleyfi -Sámsstaðir 1 lóð 10 - Sólarátt ehf kt. 500424-1170 - 28.10.2025

2510088

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingarembættis Rangárþins eystra vegna starfsleyfisumsóknar að Sámsstöðum 1, lóð 10, L203315.
Rekstrarleyfisumsóknin var grenndarkynnt skv. skilmálum aðalskipulags Rangárþing eystra og athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisnefnd bókaði eftirfarandi:
Í ljósi athugasemda sem bárust við grenndarkynningu veitir skipulags- og umhverfisnefnd neikvæða umsögn er varðar umsókn um rekstrarleyfi að Sámsstöðum 1, lóð 10. Umrætt svæði er skv. gildandi aðalskipulagi Rangárþings eystra frístundahúsasvæði þar sem er öllu jafna ekki heimilt að vera með rekstur.

5.Umsögn um rekstrarleyfi - Beinakot - Strangers ehf kt. 500913-1180 - 18.121.2025

2512043

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi.

6.Umsögn um starfsleyfi - Fagrahlíð - Hlíðin fagra ehf kt. 500821-1240

2511004

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingarembættis Rangárþins eystra vegna starfsleyfisumsóknar að Fögruhlíð 1,L238107.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi.

7.Umsókn um byggingarleyfi - Teigur 1 164065 - Umfangsflokkur 2

2510053

Tómas Jensson óskar eftir byggingarleyfi fyrir 94,1 m² gíbúðarhús að Teigur 1, L164065. Svanur Þór Brandsson skilar inn aðaluppdráttum dags. 17. október 2025.
UMFANGSFLOKKUR 2
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

8.Umsókn um byggingarheimild Arngeirsstaðir 2- Umfangsflokkur 1

2512044

Landeigandi óskar eftir byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á matshluta 03, skemmu.

Helgi Kjartansson skilar inn aðaluppdráttum, dags. 15. desember 2025.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 10:30.