148. fundur 04. desember 2025 kl. 10:00 - 12:00 í Hvolnum Hvolsvelli
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Ólafur Rúnarsson embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Merkjalýsing - Vatnahjáleiga, samruni landeigna

2512005

Vatnahjáleiga 1A, L227707 sameinast við Vatnahjáleigu, L163891 skv. innsendri merkjalýsingu.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Koltursey - Umfangsflokkur 1

2511052

EfstaSel ehf. óskar eftir byggingarheimild fyrir 12,9 m² viðbyggingu við gestahús, mhl. 01, á lóðinni Koltursey, L213559. Björn Sveinsson skilar inn aðaluppdráttum, dags. 21. nóvember 2025.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 12:00.