144. fundur 22. október 2025 kl. 10:00 - 12:00 í Hvolnum Hvolsvelli
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Merkjalýsing - Skarðshlíð, L197847

2510059

Verið er að afmarka lóðina Skarðshlíð 2, L197847 í fyrsta sinn. Merkjalýsing er unnin af Eflu verkfræðistofu.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd.

2.Merkjalýsing - Grjótá

2510041

Lögð er fram merkjalýsing fyrir Grjótá, L164012 í Rangárþingi eystra. Verð er að afmarka lóðina í fyrsta sinn. Merkjalýsandi er Adam Hoffritz.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

3.Merjalýsing - Miðkriki, L164182

2501002

Lögð er fram merkjalýsing fyrir Miðkrika, L164182. Verð er að afmarka lóðina í fyrsta sinn. Merkjalýsandi er Adam Hoffritz.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Teigur 1 164065 - Umfangsflokkur 2

2510053

Tómas Jensson óskar eftir byggingarleyfi fyrir 94,1 m² gíbúðarhús að Teigur 1, L164065. Svanur Þór Brandsson skilar inn aðaluppdráttum dags. 17. október 2025.

5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Stóra-Mörk 3D - Umfangsflokkur 2

2509088

Árni Ásgeirsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir tveggja 36 m² gistihúsa að Stóra-Mörk 3D, L236887. Vigfús Þór Hróbjartsson skilar inn aðaluppdráttum dags. 30. september 2025.

6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Öldugerði 19 - Umfangsflokkur 2

2509020

Sótt er um byggingarheimild fyrir 27,5 m² viðbygging við 133,8 m² íbuðarhús á lóðinni Öldugerði 19, L 164460. Tryggvi Tryggvason sendir inn aðaluppdrætti, dags. 03.09.2025.



Viðbyggingar tillagan var grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Öldugerðis 17 og Litlagerðis 12 - 18 en engar athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:

- Aðaluppdrættir uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.

- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

7.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 2

2508022

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 6270 m² hóteli í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Hótelið verður skilgreint sem mhl 01.

8.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508023

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 760 m² starfsmannahús í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 02.

9.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508024

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 52 m² einhbýlishús fyrir starfsmenn í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 03.

10.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508025

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 52 m² einhbýlishús fyrir starfsmenn í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 04.

11.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508026

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 52 m² einhbýlishús fyrir starfsmenn í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 05.

12.Umsögn um gistileyfi - Sperðill - Gámastöðin kt. 540789-5419 - 19.09.2025

2509062

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs - gististaðar í flokki II - C minna gistiheimili - að Sperðill ,L163968.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

13.Umsögn um gistileyfi - Langanes 10 - Little Red Cabin ehf. kt. 600625-0980 - 15.10.2025

2510046

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfis til gististarfsemi að Langanes 10 "Little Red Cabin",L192870.

14.Umsögn um starfsleyfi - Langanes 10 - Little Red Cabin - kt. 600625-0980 - 15.10.2025

2510047

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Langanes 10, L192870.

15.Umsókn um stöðuleyfi; Seljalandsfoss

2507030

Aðalfoss ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir tveimur 40 feta gámum Eystra-Seljaland, L 224156.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 4 mánaða frá dagsetningu 22. október 2025.

Fundi slitið - kl. 12:00.