143. fundur 13. október 2025 kl. 15:00 - 16:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Merkjalýsing - Brekkur

2509091

Verið er að kynna merkjalýsingu jarðarinnar Brekkur, L164160, samkvæmt gildandi aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032, þar sem afmörkun og flatarmál jarðarinnar (191,1 ha) er til umræðu.



Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

2.Umsókn um byggingarheimild - Mastur við Rauðsbakka

2509078

Sigurður Ingi Hauksson, Neyðarlínan ohf., sendir tilkynningu til Skipulags- og byggingafulltrúa Rangárþings eystra vegna fyrirhugaðs álstaurs í Rauðsbakka undir Eyjafjöllum, L163709.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Móeiðarhvoll 2 lóð 164318 - Umfangsflokkur 1

2506043

Landeigandi óskar eftir byggingarheimild fyrir 93,6 m² bogaskemma að Móeiðarhvoll 2 lóð, L164318. Lárus Kristinn Ragnarsson skilar inn aðaluppdráttum dags. 23. júní 2025.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingarleyfi verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:

- Aðaluppdrættir uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.

- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skarðshlíð 2 lóð 197847 - Umfangsflokkur 2

2507042

Óskað er eftir heimild til að byggja við gamla félagsheimilið við Skarðshlíð. Sigurður Einarsson skilar inn aðaluppdráttum, dag. 10. júlí 2025.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Samþykki Vegagerðarinnar liggur fyrir.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 16:00.