Verið er að afmarka og hnitsetja lóðir við Hlíðarveg: Vallarbraut 2, Hlíðarvegur 1, 3, 5, 7, 9 - 11 og 13.
Merkjalýsing liggur fyrir fyrir hverja lóð sérstaklega.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
2.Merkjalýsing - Eystra-Seljaland F1-F4 og Ú1, samruni
2507051
Verið er að sameina eftirfarandi landeignir til að mynda L224154: Eystra-Seljaland F2.
Eystra-Seljaland F1 L224153
Eystra-Seljaland F2 L224154
Eystra-Seljaland F3 L224155
Eystra-Seljaland F4 L226201
Eystra-Seljaland Ú1 L224156
Merkjalýsandi er Maria Lisbet Ólafsdóttir.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
3.Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám við Dímonarflöt 7
2508055
Guðjón Baldvinsson, eigandi lóðarinnar, sækir um stöðuleyfi fyrir 27 m² verktakaskúr til geymslu á lóðinni Dímonarflöt 7, L218754.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða, frá dagsetningu: 01. september 2025.
4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Syðsta-Mörk 163803 - Umfangsflokkur 1
2508053
Óskar eftir byggingarheimild til niðurrifs fyrir mhl. 07 hlöðu (1934), mhl. 13 skur (1934), mhl. 14 kálfahús (1964) að Syðsta-Mörk, L163803.
Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Vottorð um að eignin sé veðbandalaus verði lagt fram.
- Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram.
- Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.