138. fundur 24. ágúst 2025 kl. 10:00 - 12:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Ólafur Rúnarsson embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland Ú1 - Umfangsflokkur 2

2507039

Aðalfoss ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 1676,5 m² hótel í Eystra-Seljaland Ú1, L224156. Hótelið verður reist með því að nýta núverandi burðarvirki kornhlöðunnar. Davíð Pitt skilar inn aðaluppdráttum.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:

- Aðaluppdrættir uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.

- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
- Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um brunahönnunarskýrslu.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 2

2508022

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 6270 m² hóteli í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Hótelið verður skilgreint sem mhl 01.



Afgreiðslu málsins frestað vegna ófullnægjandi gagna.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508023

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 760 m² starfsmannahús í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 02.

Afgreiðslu málsins frestað vegna ófullnægjandi gagna.

4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508024

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 52 m² einhbýlishús fyrir starfsmenn í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 03.
Afgreiðslu málsins frestað vegna ófullnægjandi gagna.

5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508025

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 52 m² einhbýlishús fyrir starfsmenn í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 04.
Afgreiðslu málsins frestað vegna ófullnægjandi gagna.

6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland F7 - Umfangsflokkur 1

2508026

Fsel ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 52 m² einhbýlishús fyrir starfsmenn í Eystra-Seljaland F7, L231719. Emil Þór Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum 12. ágúst 2025.



Starfsmannahús verður skilgreint sem mhl 05.
Afgreiðslu málsins frestað vegna ófullnægjandi gagna.

7.Umsögn um gistileyfi - Barkarstaðakot - RS ehf., kt. 521295-2369 - 18.08.2025

2508044

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna rekstrarleyfisumsóknar að Barkarstöðum, L220645 til rekstur gististaðar í flokki II c, minna gistiheimili.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis, staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi og skv. heimildum í skipulagi.

8.Umsögn um gistileyfi - Koltursey - Bertha María Waagfjörð - 08.08.2025

2508018

Bertha María Waagfjörð sækir um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II H frístundahús, á Koltursey, L213559. F2318326
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

9.Umsögn um gistileyfi - Skeggjastaðir lóð 18- G.K. Bílaréttingar ehf. - 31.07.2025

2507072

G.K. Bílaréttingar ehf. sækir um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-C, minna gistiheimili, á Skeggjastöðum, land 18, L199781.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

10.Umsögn um rekstrarleyfi - Langhólmi - Kjartanshólmi ehf - 07.07.2025

2507013

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs að Kjartanshólmi ehf,L224712.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

Fundi slitið - kl. 12:00.