137. fundur 14. ágúst 2025 kl. 10:00 - 12:00 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Merkjalýsing - Dílaflöt

2507060

Verið er að stofna tvær nýjar lóðir úr lóðinni Dílaflöt L234644: Dílaflöt 1 og Dílaflöt 2. Merkjalýsandi er Magate ehf.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

2.Merkjalýsing - Steinar 4

2507074

Verið er að afmarka og hnitsetja jörðina Steinar 4, L163725. Merkjalýsandi er Ullu Rolfsigne Pedersen, Landnot ehf.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Stóra-Hildisey 1 163898 - Umfangsflokkur 1

2508010

Rafn Bergsson óskar eftir breytingu á notkun frá 45,2 m² bílskúr í íbuð að Stóra-Hildisey 1, L163898.

Vigfús Þór Hróbjartsson, skilar inn aðaluppdráttum dags. 05.08.2025.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Umsögn um gistileyfi - Skeggjastaðir lóð 18- G.K. Bílaréttingar ehf. - 31.07.2025

2507072

G.K. Bílaréttingar ehf. sækir um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-C, minna gistiheimili, á Skeggjastöðum, land 18, L199781.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu gistileyfis.

5.Umsögn um gistileyfi - Koltursey - Bertha María Waagfjörð - 08.08.2025

2508018

Bertha María Waagfjörð sækir um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II? H Frístundahús., á Koltursey, L213559. F2318326
Skipulags- og byggingarfulltrúi óskar eftir frekari gögnum.

6.Umsögn um starfsleyfi - Saga Luxary Villa - Sámsstaðir 1 lóð 10 - 23.07.2025

2508001

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Sámsstaðir 1 Lóð 10, L203315.
Skipulags- og byggingarfulltrúi visar málið til Skipulags- og Umhverfisnefndir.

7.Umsögn vegna starfsleyfi - Borg apartments - endurnýjun - Leigufélagið Borg - 30.07.2025

2507073

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Nýbýlavegur 44, L218901.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir athugasemd við veitingu starfsleyfis þar sem umrætt húsnæði er á skilgreindu íbúðarsvæði innan þéttbýlis og því ekki í samþykktu atvinnuhúsnæði með vísan í 3. gr. laga nr. 85/2007 um Lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

8.Umsögn um starfsleyfi - Sólarátt - Sámsstaðir 1 lóð 10 - 30.07.2025

2507070

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Sámsstaðir 1 lóð 10, L203315.
Skipulags- og byggingarfulltrúi visar málið til Skipulags- og Umhverfisnefndir.

9.Umsögn um rekstrarleyfi - Langhólmi - Kjartanshólmi ehf - 07.07.2025

2507013

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs að Langhólma, L224712. Sótt erum leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-H frístundahús.

Skipulags- og umhverfisnefnd fellur frá grenndarkynningu og gerir ekki athugasemd við að rekstrarleyfi verði veitt.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

10.Umsögn um rekstrarleyfi - Kot, Goðaland lóð - Mupinak ehf - 15.07.2025

2507045

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs að Goðalandi, F21947293. Sótt er um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-D gistiskáli.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

Fundi slitið - kl. 12:00.