136. fundur 24. júlí 2025 kl. 10:30 - 13:00 á skrifstofu Rangárþings ytra
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Ólafur Rúnarsson embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umsögn vegna rekstrarleyfi - Laufey Bistro, Brúnir 1

2407010

Sýslumaður Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa um umsókn Vigg ehf. fyrir reksturs veitinga í flokki II tegund A við Brúnir 1, Laufey Bistro.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfi.

2.Umsókn um stöðuleyfi við Vestur-Fíflholt

2506041

Águst Rúnarsson sækjar um stöðuleyfi fyrir gestahús 45 m² samsettir gámar í Vestur-Fíflholt fyrir 6 mánaðir. Dags. 18. júní 2025.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að stöðuleyfi verði veitt til sex mánaða frá 18. júní 2025.

3.Umsögn um rekstrarleyfi - Kot, Goðaland lóð - Mupinak ehf - 15.07.2025

2507045

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs að Goðalandi, F21947293. Sótt er um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-D gistiskáli.
Afgreiðslu frestað og óskað eftir frekari upplýsingum.

4.Umsögn vegna starfsleyfi - endurnýjun vegna vatnsbóls - Neðri-Þverá

2507047

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsókn skiplags- og bygginarfulltrúa vegna starfsleyfisumsóknar fyrir vatnsból við Neðri-Þverá.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við að starfsleyfi fyrir vatnsból við Neðri-Þverá verði endurnýjað.

5.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skólavegur 1 - Umfangsflokkur 2

2507049

Skógarskóli fasteign ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir breytingu á innraskipulagi fyrir héraðsskólann á Skógum.

Oddur Kristján Finnbjarnarson skilar inn aðaluppdráttum.
Afgreiðslu frestað.

6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skarðshlíð 2 lóð 197847 - Umfangsflokkur 2

2507042

Óskað er eftir heimild til að byggja við gamla félagsheimilið við Skarðshlíð.
Afgreiðslu málsins frestað.

7.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Guðnastaðir lóð 1 200295 - Umfangsflokkur 1

2506046

Guðni Ragnarsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir 160 m² Skemma í Guðnastaðir lóð 1, L200295. Helgi Kjartansson skilar inn aðaluppdráttum 25. júní 2025.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

8.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Eystra-Seljaland Ú1 - Umfangsflokkur 2

2507039

Aðalfoss ehf. óskar eftir heimild til að breyta núverandi kornhlöðu í hótel. Davíð Pitt skilar inn aðaluppdráttur dags. 5. júlí 2025.
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu málsins.

Fundi slitið - kl. 13:00.