125. fundur 26. nóvember 2024 kl. 10:00 - 12:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Ólafur Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Ormskot 163792 - Umfangsflokkur 1

2411034

Landeigandi óskar eftir byggingarleyfi fyrir tveimur gestahúsum að Ormskoti, L163792.
UMFANGSFLOKKUR 1
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

2.Umsögn um starfsleyfi - Þorsteinshús Ytri-Skógar

2411010

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingarembættis Rangárþings eystra vegna starfsleyfisumsóknar að Ytri-Skógum, Þorsteinshúsi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi og skv. heimildum í skipulagi.

3.Umsögn um starfsleyfi - Stóra-Mörk 3b

2411041

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingarembættis Rangárþings eystra vegna starfsleyfisumsóknar að Stóru-Mörk 3b.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi og skv. heimildum í skipulagi.

4.Landskipti - Hörðuskáli

2411042

Landeigandi óskar eftir landskiptum, verið er að stofna lóð skv. deiliskipulagi sem samþykkt var af sveitarstjórn 20. október 2022.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við landskiptin.

Fundi slitið - kl. 12:00.