124. fundur
27. október 2024 kl. 09:30 - 12:15 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
Þóra Björg Ragnarsdóttirembættismaður
Ólafur Rúnarssonembættismaður
Fundargerð ritaði:Þóra Björg RagnarsdóttirSkipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá
1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vestra-Fíflholt 163974 - Umfangsflokkur 2
2410017
Landeigandi óskar eftir byggingarheimild fyrir gestahúsum að Vestra-Fíflholt, L163974. Vigfús Halldórsson skilar inn aðaluppdráttum dags. 1. október 2024.
Skipulags- og byggingarfulltrúi fer fram á deiliskipulag.
2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hvolsvegur 5 - Flokkur 2,
2408071
Óskað er eftir byggingarleyfir fyrir 447,4 m2 gistihúsi við Hvolsveg 5, L233606. Pétur Bolli skilar inn aðaluppdráttum dags. 28. ágúst 2024.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Ormsvöllur 2 - Umfangsflokkur 1
2410077
Lóðarhafi óskar eftir byggingarleyfi fyrir 396,2 m² iðnaðarhúsnæði að Ormsvelli 2e.
Guðmundur Úlfar Gíslasn skilar inn aðaluppdráttum í október 2024.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
4.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Ormsvöllur 17 - Umfangsflokkur 1
2410088
Lóðarhafi óskar eftir byggingarleyfi fyrir 1.180 m² iðnaðarhúsnæði að Ormsvelli 17, L231351. Sveinn Ívarsson skilar inn aðaluppdráttum dags. 20. október 2024.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
5.Tilkynningarskyld framkvæmd - Litlatún
2409100
Landeigandi sendir inn tilkynningu um 15 m² smáhýsi á lóðinni Litlatún, L190740.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við smáhýsið.
6.Umsókn um stöðuleyfi - Matarvagn við Austurveg
2410096
Gengur ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn við Austurveg 6.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá dagsetningu 31. október 2024.
7.Umsókn um stöðuleyfi; Austurvegur
2410089
The Food Truck Company ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn við Austurveg 6.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá dagsetningu 31. október 2024.
Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs í flokki II-C, að Ytri-Skógum, Þorsteinshúsi.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis og staðfestir að byggingin sé á loka byggingarstigi og heimild skv. skipulagi.
9.Umsókn um stöðuleyfi; Bæjarbraut
2410084
Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir vinnuskúr við Bæjarbraut, 860 Hvolsvelli fyrir vinnuskúr fyrir komandi uppbyggingu á reitnum.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá dagsetningu 31. október 2024.
10.Umsögn vegna rekstrarleyfi - Ormskot gistiheimili
2409018
Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs að Ormskoti, L200269 í flokki II-C.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis og staðfestir að heimild sé fyrir rekstrinum í skipulagi og að mannvirkið sé á loka byggingarstigi.
11.Umsögn um starfsleyfi - Eldstó Austurvegi 2
2410073
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Austurvegi 2, L164212.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi.