122. fundur 13. september 2024 kl. 10:00 - 14:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Ólafur Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Þóra Björg Ragnarsdóttir Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Litla-Dímon - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,

2402165

South Coast ehf. sendir inn umsókn fyrir byggingarheimild fyrir þjónustuhúsi að Litlu-Dímon. Jón Davíð Ásgeirsson skilar inn aðaluppdráttum dags. 11.maí 2023.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vallarbraut 1 - Umfangsflokkur 2

2409056

VHT ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 10 íbúða fjölbýlishúsi við Vallarbraut 1-3, 860 Hvolsvelli. Guðjón skilar inn aðaluppdráttum, dags. 12. september 2024.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Jákvæð umsögn Brunavarna Rangárvallasýslu skal liggja fyrir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Leirur 1 - Flokkur 2

2409052

Landeigandi óskar eftir byggingarheimild fyrir 17 m² viðbyggingu ásamt breyttri notkun á mannvirki. Brynjólfur Guðmundsson skilar inn aðaluppdráttum.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Kirkjulækur 3 lóð 173063 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

2409057

Míla óskar eftir byggingarheimild fyrir niðurrifi á spennistöð úr landi Háa-Múla.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

5.Umsókn um stöðuleyfi - gámur við Eystra-Seljaland

2409050

Aðalfoss ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir tveimur 40 feta gámum Eystra-Seljaland, L 224156.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá 19. september 2024.

6.Umsögn um starfsleyfi - Seljalandsfoss - salernisaðstaða

2409061

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi salernisgámum við Seljlandsfoss.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir athugasemd vegna umsóknar um starfsleyfi. Ekki er liggur fyrir heimild fyrir salernisgámum á svæðinu.

7.Umsögn vegna breytingu á rekstrarleyfi - Ásgarður

2409071

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna breytingu á gildandi rekstrarleyfi til reksturs við Ásgarði, 860 Hvolsvelli.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

Fundi slitið - kl. 14:00.