118. fundur
10. júlí 2024 kl. 10:00 - 11:20 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
Þóra Björg Ragnarsdóttirembættismaður
Leifur Bjarki Björnssonslökkviliðsstjóri
Fundargerð ritaði:Þóra Björg RagnarsdóttirSkipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá
1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Rauðuskriður 164057 - Flokkur 1,
2403132
Sótt er um byggingarleyfi fyrir sex 15 m² gestahúsum að Rauðuskriðum, L164057. Guðni Sigurbjörn Sigurðsson skilar inn aðaluppdráttum.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Staðarbakki 2, L232597- Flokkur 1,
2407046
Óskað er um byggingarheimild fyrir 89,1 m² frístundarhúsi að Staðarbakka 2, L232597. Ólafur Þ. Hersisson skilar inn aðaluppdráttum.
3.Umsögn vegna starfsleyfi - Ytri-Hóll 2
2407004
Heilbrigðiseftirlit suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Ytri-Hól.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi.
4.Umsögn vegna rekstrarleyfi - Faxi bakery
2407009
Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs að Þorvaldseyri, L228444 fyrir Faxi bakery.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.
5.Umsókn um starfsleyfi - Butra
2407011
Heilbrigðiseftirlit suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Butru, L163998 fyrir tveimur gestahúsum.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkin eru á loka byggingarstigi.
6.Umsókn um stöðuleyfi - gámasvæði Hvolsvelli 40 feta gámur
2407024
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá 11. júlí 2024.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá 17. júlí 2024.
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.