117. fundur 26. júní 2024 kl. 10:00 - 10:30 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Arnar Jónsson Köhler embættismaður
Fundargerð ritaði: Arnar Jónsson Aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Umsögn vegna starfsleyfisumsókn - Húsadalur - Stjörnunótt

2406039

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna starfsleyfis á gistingu í fjallaskálum og tjöldum.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis á fjallaskála en gefur neikvæða umsókn á tjöldin þar sem þau eru ekki skv. deiliskipulagi.

Jákvæð umsögn vegja fjallaskála til 1.árs.

2.Umsókn um stöðuleyfi - gámasvæði Hvolsvöllur 20 feta gámur

2406053

Edda S Thorlacius sækir um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámsvæði steitarfélagsins.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 12 mánaða frá dagsetningu 27.06.2024

3.Umsókn um starfsleyfi - Brúnir 1

2406055

Heilbrigðiseftirlit suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Brúnir 1 L227590.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir athugasemd við veitingu starfsleyfis þar sem mannvirkið er ekki komið á lokabyggingarstig.

4.Umsögn um rekstrarleyfi - Butra

2406059

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs gististaðar í flokk II? Tegund:? H Frístundahús að Butra, L163998

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

Mál sett fyrir byggðarráð.

5.Umsagnarbeiðni - um breytingu á gildandi rekstrarleyfi - Hamar

2406061

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsókn um breytingu á gildandi rekstrarleyfi til stækkunar 2 hús fyrir 8 gesti að Hamrar fnr: 232-1146
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.

6.Umsögn vegna starfsleyfis - Hamar

2406062

Heilbrigðiseftirlit suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Hamar, L218934
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis og staðfestir að mannvirkið er á loka byggingarstigi.

7.Landskipti - Gunnarshólmi, spennistöð

2406065

Leiðrétt afmörkun lóðar L230213
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við breytt afmörkun landeignar.

8.Sámsstaðir 2 164059 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2406068

Fanney Þórsdóttir sækir um leyfi fyrir niðurrifi á ónýtu íbúðarhúsi.
Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:


- Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram.

- Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.

9.Sámsstaðir 1, lóð 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,

2406066

Stefán Stefánsson sækir um byggingarheimild fyrir viðbyggingu
Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu vegna ófullnægjandi gagna.

Fundi slitið - kl. 10:30.