Sveitarstjórn Rangárþings eystra

Fundargerð

225. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, fimmtudaginn 11. maí, 2017 kl. 12:00
Mætt:   Ísólfur Gylfi Pálmason, Benedikt Benediktsson, Þórir Már Ólafsson, Guðmundur Viðarsson, Birkir Arnar Tómasson, Christiane L. Bahner boðar forföll og Lilja Einarsdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum. 
Fundargerð ritaði Árný Lára Karvelsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Oddviti biður um að eftirfarandi dagskrárliðum og fundargerðum sé bætt við í dagskrána: Samþykkt Tónlistarskóla Rangæinga bs., 7. fundi Héraðsnefndar Rangæinga, sameiginlegum fundi Héraðsnefnda Rangæinga og Vestur-Skaftafellssýslu, 25. fundur stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og aðalfundi Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Einnig ályktun um deiliskipulag við Seljalandsfoss.
Ákveðið að næsti fundur sveitarstjórnar verði 1. júní 2017.

Gengið var til formlegrar dagskrár:
Dagskrá:

Erindi til sveitarstjórnar:
1.Ályktun vegna deiliskipulags við Seljalandsfoss.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra harmar þá afvegaleiddu umræðu sem fram hefur farið vegna deiliskipulags við Seljalandsfoss. Sveitarstjórn bendir á að allar upplýsingar um tillögurnar og umsagnir eru á heimasíðu sveitarfélagsins hvolsvollur.is. Mikils er um vert að geta gengið frá sameiginlegu bílastæði fyrir svæðið og draga bifreiðaumferð sem lengst frá fossunum Seljalandsfossi og Gljúfrabúa og færa þjóðveginn sem liggur í Dals- og  Merkurhverfi og til Þórsmerkur þannig að greiðafærara verði á svæðinu.   Deiliskipulagstillagan er nú til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun. 
2.Samþykkt fyrir Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Samþykkt samhljóða.
3.1705013 Bergrisi ehf: Stöðumælar við Seljalandsfoss: Tilboðslýsing og samningur.
Sveitarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.
4.1705019 Leikfélag Austur-Eyfellinga: Beiðni um styrk.
Sveitarstjórn samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 100.000,-
5.1705003 50. fundur skipulagsnefndar Rangárþings eystra.
1.1705010Ytri-Skógar - Lóðarumsókn
Eyja Þóra Einarsdóttir, Jóhann Frímannsson og Einar Þór Jóhannsson, sækja um að fá úthlutað verslunar- og þjónustulóðunum fyrir sunnan Fossbúð, Ytri-Skógum. 
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til Héraðsnefnda Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslna. 
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.  
2.1705009Neðri-Dalur lóð – Umsókn um stöðuleyfi
Ástvaldur Óskarsson kt. 251062-4049, sækir um stöðuleyfi fyrir aðstöðuhúsi vegna fyrihugaðra skipulagðra ferða á Eyjafjallajökul, á óstofnaðri lóð úr landi Neðra-Dals, við afleggjara af Þórsmerkurvegi að Hamragarðaheiði. 
Skipulagsnefnd hafnar veitingu stöðuleyfis. Skipulagsnefnd beinir því til umsækjanda að ef hann hyggur á slíkan rekstur er nauðsynlegt að óska eftir breytingu á aðalskipulagi og vinna deiliskipulag fyrir svæðið samhliða. Einnig bendir nefndin á að mikilvægt sé að ganga frá samningum um aðgengi við landeigendur á svæðinu.   
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. 

3.1705008Stóra-Mörk 3 - Landskipti
Ásgeir Árnason kt. 240456-7969 og Ragna Aðalbjörnsdóttir kt. 190462-3319, óska eftir því að skipta 1050 m² lóð fyrir íbúðarhús úr jörðinni Stóru-Mörk 3 ln. 163810, skv. Meðfylgjandi uppdrætti unnum af Vigfúsi Þór Hróbjartssyni dags. 30. mars 2017. Óskað er eftir því að hin nýja lóð fái heitið Stóra-Mörk 4. Lögbýlisréttur mun áfram fylgja jörðinni Stóra-Mörk 3 ln. 163810. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á nýju lóðinni. 
Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og heitið á nýju lóðinni. 
4.1705007Skarðshlíð II - Landskipti
Eyja Þóra Einarsdóttir f.h. Fjallafje ehf. kt. 620515-1160, Jóhann Frímannsson kt. 140952-3709 og Ólafur Tómasson kt. 271047-4609, óska eftir því að skipta 5371m² lóð úr jörðinni Skarðshlíð II ln. 163719, skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. dags. 29. mars 2016. Óskað er eftir því að hin nýja lóð fái heitið Skarðshlíð. Lögbýlisréttur mun áfram fylgja jörðinni Skarðshlíð II ln. 163719. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á nýju lóðinni. 
Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og heitið á nýju lóðinni.   
5.1703035Hvolsvöllur Tengivirki - Deiliskipulag
Tillagan gerir ráð fyrir núverandi lóð verði skipt upp í tvær lóðir. Á annari lóðinni verður heimilt að reisa allt að 700m² aðveitustöð á einni til tveimur hæðum. Hámarkshæð húss verður 11 m. Aðveitustöðinni er ætlað að hýsa allt að 66 kV rofabúnað til tengingar við þær línur og strengi sem koma í tengivirkið. Öll starfsemi skal fara fram innanhúss en ekki er gert ráð fyrir tengivirki utanhúss á lóðinni. Á hinni lóðinni verður heimilt að stækka núverandi aðveitustöð í allt að 150m². Hámarkshæð húss verður 7 m. Einnig verður heimilt að reisa á lóðinni allt að 3000m² lagerhúsnæði sem leysir af hólmi hluta núverandi lagersvæða. Hámarkshæð lagershúss verður 7,5 m. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 27. mars, með athugasemdafresti til 8. maí 2017.  
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar og telst hún því samþykkt. Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6.1703020Núpsbakki 1 - Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan tekur til um 7,5 ha úr jörðinni Núpsbakka 1 ln.175933. Tillagan tekur til fjögurra byggingarreita, fyrir stækkun núverandi íbúðarhúss og fjárhúss, fyrir byggingu nýs íbúðarhúss og nýs frístundarhús. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 27. mars, með athugasemdafresti til 8. maí 2017.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar og telst hún því samþykkt. Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.   
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.1701063Lambafell - Deiliskipulagsbreyting
Tillagan gerir ráð fyrir að byggingarreitur nr. 2, í gildandi deiliskipulagi, þar sem gert var ráð fyrir byggingu skemmu sé felldur niður. Í staðinn er gert ráð fyrir 15 lóðum og byggingarreitum fyrir smáhýsi sem hugsuð eru til útleigu. Stærð hvers smáhýsis getur verið allt að 30m². Að öðru leyti gilda skilmálar gildandi deiliskipulags. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 27. mars, með athugasemdafresti til 8. maí 2017.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar og telst hún því samþykkt. Brugðist hefur verið við umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, með óverulegum breytingum á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. Einnig er bætt í greinargerð kafla varðandi náttúruvá skv. umsögn Veðurstofu Íslands. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
8.1701059Ytri-Skógar lóð – Umsókn um byggingarleyfi
Elías Rúnar Kristjánsson f.h. Hótels Skóga kt. 691211-1500, sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun Hótels Skóga á lóðinni Ytri-Skógar lóð ln. 163691, skv. meðfylgjandi uppdráttum unnum af Einari V. Tryggvasyni. Skipulagsnefnd samþykkti á 47. fundi sínum þann 2. febrúar 2017, að grenndarkynna byggingarleyfisumsóknina. Grenndarkynning hefur farið fram og var athugasemdafrestur til 19. apríl 2017. Engar athugasemdir bárust. 
Skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að ganga frá samþykkt um byggingaráform.
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar.   
9.1610071Gunnarsgerði - Deiliskipulagsbreyting
Rangárþing eystra leggur fram deiliskipulagsbreytingu fyrir Gunnarsgerði á Hvolsvelli. Gildandi deiliskipulag var samþykkt í sveitarstjórn 13.03.2008. Ástæða endurskoðunarinnar eru margvísilegar, svo sem fábreytileiki húsgerða, skortu á gestabílastæðum, skilgreining byggingarreita, stærð opins svæðis á milli Gunnarsgerðis og Króktúns ofl. Breytingartillagan gerir ráð fyrir allt að 27 íbúðum í rað, par og einbýlishúsum. Bílastæðum er fjölgað og staðsetningu þeirra breytt. Þar sem byggt hefur verið of nærri norður lóðamörkum við Njálsgerði, norðan götu eru þær lóðir við Njálsgerði stækkaðar um 3m til norðurs. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 27. mars, með athugasemdafresti til 8. maí 2017.
Anton Kári víkur af fundi við afgreiðslu erindisins. Ein athugasemd barst á auglýsingartímanun. Athugasemd snýr að legu Vallarbrautar að Gunnarsgerði og auknu byggingarmagni smáíbúða í Gunnarsgerði. Skipulagsnefnd tekur undir athugasemd varðandi legu Vallarbrautar og samþykkir að hnika henni til vesturs í samræmi við núverandi lóðamörk Njálsgerðis 1. Nefndin telur ekki ástæðu til að endurskoða íbúðamagn í Gunnarsgerði, einungis er fjölgun um 4 íbúðir að ræða frá gildandi deiliskipulagi. 
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.1610067Skíðbakki, Bryggjur – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan tekur til um 2,6 ha landspildu úr jörðinni Skíðbakka 1. Gert er ráð fyrir þremur byggingarreitum fyrir byggingu íbúarhúss, viðbyggingu við núverandi gestahús og nýtt gestahús. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 27. mars, með athugasemdafresti til 8. maí 2017. 
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Í umsögn Vegagerðar er bent á að skynsamlegra er að tengja aðkomuveg að Krossi, líkt og skipulagsnefnd benti á, síðast þegar málið var fyrir nefndinni. Einnig bendir nefndin á ákvæði aðalskipulags Rangárþings eystra 2012-2024, kaflar 4.3.1 og 4.17.5. Skipulagsnefnd leggur til að skoðaðir verði allir möguleikar varðandi þá tengingu. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu.  
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. 
11.1705018Ráðagerði - Deiliskipulag
Svanur Sigurjón Lárusson kt. 070852-2179 og Sigurborg Þ Óskarsdóttir kt. 010153-3289, óska eftir heimild til að vinna deiliskipulag fyrir frístundasvæði á lóð sinni Ráðagerði ln. 224947. Tillagan tekur til 8 frístundalóða, þar sem heimilt verður að byggja frístundahús ásamt geymslu og gestahúsi. Innan svæðisins er malarnám á vegum Vegagerðarinnar sem nú hefur verið aflagt. Gert er ráð fyrir því að umbreyta gömlum malarnámunum og búa til eina samfellda tjörn.  
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsgerð verði heimiluð. Einnig leggur nefndin til að gerð verði breyting á gildandi aðalskipulagi Rangárþings eystra, þar sem landnotkun á umræddu svæði verði breytt í frístundasvæði. Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir að tillagan verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn samþykkir 50. fundargerð skipulagsnefndar í heild sinni. 

Fundargerðir:
1.1704052 2. fundur Skólanefndar Tónlistarskóla Rangæinga. 27.04.17. Staðfest.
2.1705016 187. stjórnarfundur Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. 28.04.17. Staðfest.
3.1705022 7. fundur Héraðsnefndar Rangæinga. 08.05.17. 
Liður 3. Málefni Stórólfsvallar. 
3.1Borist hefur kauptilboð í 212 ha lands úr landi jarðarinnar Stórólfsvallar. Tilboðsfjárhæðin hljóðar upp á kr. 76.000.000,- Tilboðið var samþykkt af Héraðsnefnd Rangæinga með fyrirvara um samþykki sveitarstjórna Ásahrepps, Rangárþings eystra og Rangárþings ytra.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir kauptilboðið.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.
4.1705026 Sameiginlegur fundur Héraðsnefndar Rangæinga og Héraðsnefndar Vestur-Skaftafellssýslu 08.05.17.
Liður 2 Málefni Skógasafns
Ríkissjóður hefur gert Skógasafni tilboð um að kaupa byggingar Skógaskóla. Verði af kaupum er fyrirhugað að selja húsin aftur undir starfsemi sem gæti fallið vel að starfsemi Skógasafns. Héraðsnefndirnar veita stjórn Skógasafn heimild til að ganga til samninga við Ríkissjóð um kaup á húsunum. Ákvörðunin er háð samþykki sveitarstjórna í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að veita stjórn Skógasafns heimild til að ganga til samninga við Ríkissjóð um kaup á húsunum.
      Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.
5.1705023 Aðalfundur Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Staðfest.
6.1705024 25. fundur stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. 09.05.17.
Liður 4. Starfsmannamál skólaþjónustu.
Stjórnin samþykkir fyrir sitt leyti 60% stöðugildisaukningu við Skólaþjónustudeild á grundvelli rökstuðnings Eddu Antonsdóttur. Stjórnin telur ekki þörf á að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að svo komnu máli, þar sem ekki hefur tekist að ráða í stöðu talmeinafræðings og því skapast fjárhagslegt svigrúm
      Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir fyrir sitt leyti stöðugildisaukningu um 60%  
      við Skólaþjónustudeild Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
      Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.


Mál til kynningar:
1.1704053 Ormsvöllur 1: Uppsögn á leiguhúsnæði.
2.1704054 Hlíðarvegur 16: Ósk um að fá að vera í núverandi skrifstofuhúsnæði sveitarfélagsins til 30.4.18.
3.1705014 Sláturfélag Suðurlands: Arðgreiðsla 2017.
4.1705015 Lánasjóður sveitarfélaga: Arðgreiðsla 2017.
5.1705011 Fundarboð: Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2017.
6.1705012 Þjóðskrá Íslands: Breytingar í fasteignaskrá.
7.1703006 Tilkynning um niðurfellingu Akursvegar nr. 2644 af vegaskrá.
Tilkynningin send Samgöngu- og umferðarnefnd til upplýsinga.
8.1703007 Tilkynning um niðurfellingu Brúarvegar nr. 2426 af vegaskrá.
Tilkynningin send Samgöngu- og umferðarnefnd til upplýsinga.
9.1703008 Tilkynning um niðurfellingu Miðkrikavegar 2 nr. 2642 af vegaskrá.
Tilkynningin send Samgöngu- og umferðarnefnd til upplýsinga.
10.1608047 Sýslumaðurinn á Suðurlandi: Rekstrarleyfi: Gilsbakki 2.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:20.

____________________              _______________________
      Lilja Einarsdóttir                       Ísólfur Gylfi Pálmason
                                  
______________________                     ______________________
      Þórir Már Ólafsson                             Benedikt Benediktsson
                                                                 
_______________________                    _______________________    
Birkir Arnar Tómasson                                    Guðmundur Viðarsson