Sveitarstjórn Rangárþings eystra

Fundargerð

209. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli fimmtudaginn 10. mars 2016  kl. 12:00
Mætt: Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Þórir Már Ólafsson,  Jóhanna Gunnlaugsdóttir, varamaður Benedikts Benediktssonar, Birkir A. Tómasson,  Sigríkur Jónsson, varamaður Kristínar Þórðardóttur, Christiane L. Bahner, Árný Lára Karvelsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi, sem ritaði fundargerð og Lilja Einarsdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum.
Oddviti leitaði eftir athugasemdum við fundarboð. Engar komu fram.

Erindi til afgreiðslu:
1.1509098 Fyrirspurn fulltrúa D- og L- lista vegna fyrirhugaðra endurbóta á sparkvelli við Hvolsskóla. Upplýsingar frá Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
Ólafur Örn Oddson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, kemur inn á fundinn og fer yfir stöðu verkefnisins. Ekki hefur verið unnt að framkvæma verkið vegna veðurs en þurrt og frostlaust þarf að vera til að hægt sé að skipta um kurl. Það efni sem nú er á vellinum er vottað. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að senda út fréttatilkynning um málið.

2.1602030 149. fundur byggðarráðs Rangárþings eystra 25.02.16. Samþykkt samhljóða.

3.1603013 Tillaga um rafrænar sendingar á reikningum. Samþykkt samhljóða.

4.1603012 Efla verkfræðistofa: Tilboð á úttekt á auðlindum í Rangárþingi eystra, vindafl og smávirkjanir.
Erindinu frestað.

5.1602109 Útleiga á Seljalandsskóla. 
Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður fundarins.

6.1603023 Jafnréttisáætlun Rangárþings eystra 2016 – 2019. Samþykkt samhljóða.

7.1602027 Fundargerð skipulagsnefndar: 40. fundur 07.03.16. 
 
SKIPULAGSMÁL
1603010Hvolstún 5 – Lóðarumsókn
Emil Guðfinnur Hafsteinsson kt. 170866-4019, óskar eftir því að fá úthlutað íbúðarhúsalóðinni Hvolstún 5, Hvolsvelli.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við úthlutun lóðarinnar. 
Sveitarstjórn samþykkir úthlutun lóðarinnar. 
1603009Kotvöllur 13 – Ósk um breytingu á skipulagi
Guðrún Bára Sverrisdóttir kt. 240187-2489 og Davíð Örn Ólafsson kt. 040787-2329 óska eftir heimild til breytingar á lóðinni Kotvöllur 13, úr sumarhúsalóði í íbúðarhúsalóð. 
Skv. gildandi aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 og gildandi deiliskipulagi fyrir Kotvöll, er umrætt svæði skilgreint sem svæði fyrir frístundabyggð. Skv. aðalskipulagi og skipulagsreglugerð skal aðgreina frístundabyggð frá íbúðabyggð. Föst búseta er óheimil í frístundabyggðum. Umrætt svæði að Kotvelli samanstendur af 6 frístundalóðum. Skipulagsnefnd telur það ekki í samræmi við aðalskipulag og skipulagsreglugerð að breyta einni lóð í íbúðarhúsalóð.  
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. 
1603008D-gata 4a og 4b – Lóðarumsókn
Jón Jónsson kt. 210355-5619, óskar eftir því að fá úthlutað parhúsalóðinni D-gata 4a-4b í hesthúsahverfinu Miðkrika. Áætlað er að nýta lóðina til uppsetningar á hringgerði og síðar til bygginga hesthúss. 
Skipulagsefnd gerir ekki athugasemd við að lóðinni verði úthlutað til byggingar hesthúss. Um útlutun lóðarinnar gilda samþykktar reglur Rangárþings eystra.
Sveitarstjórn samþykkir úhlutun lóðarinnar til byggingar hesthúss.   
1603007Eystra-Seljaland – Landskipti
Óli Kristinn Ottósson kt. 300560-7099 og Auður Jóna Sigurðardóttir kt. 130158-3749, óska eftir því að skipta lóðunum Eystra-Seljaland F1, F2, F3 og Ú1, úr jörðinni Eystra-Seljaland ln. 163760 skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Steinsholt sf. dags. 03.02.2016. Landskiptin eru í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Lögbýlisréttur mun áfram fylgja Eystra-Seljaland ln.163760.  
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin. 
Sveitarstjórn samþykkir landskiptin. 
1602105Rangárþing ytra – Ósk um umsögn v. aðalskipulagsbreytingar
Sveitarstjórn Rangárþings ytra óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á mörkum vatnsverndarsvæðis við Keldur á Rangárvöllum, þar sem núverandi vatnsverndarsvæði verður minnkað. 
Skipulagsnefnd samþykkir að veiting umsagnar sé frestað þar til aflað hefur verið nægjanlegra gagna til þess að taka afstöðu til minnkunnar vatnsverndarsvæðisins við Keldur. Umrætt svæði er í nágrenni við eitt af aðal vatnsbólum Rangárþings eystra í Krappa. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að afla nauðsynlegra gagna til að unnt sé að taka upplýsta ákvörðun en skv. fyrirliggjandi gögnum sér skipulagsnefnd engin haldbær rök fyrir umræddri minnkunn vatnsverndarsvæðisins. Sveitarfélögin hafa áður rætt mikilvægi þess að taka sameiginlegar ákvarðanir þegar kemur að vatnsverndarsvæðum þeirra vegna nálægðar og sameiginlegra hagsmuna. 
Sveitarstjórn tekur undir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn telur augljóst að minnkun vatnsverndarsvæðis við Keldur mun hafa neikvæð áhrif á vatnsverndarsvæði Rangárþings eystra og sér ekki ástæðu til að veita jákvæða umsögn að svo stöddu.   
1511148Hlíðarvegur 15 – Umsókn um breytingu á innkeyrslu lóðar
Ágúst Kristjánsson kt. 110261-5199 og Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir kt. 110659-4829, óska eftir heimild til að breyta aðkomu að íbúðarhúsinu sínu Hlíðarvegi 15, Hvolsvelli. Núverandi aðkoma er frá Hvolsvegi. Óskað er eftir að aðkoma breytist og verði frá Hlíðarvegi. Skipulagsnefnd tók erindi fyrir á fundi sínum 8. desember þar sem lagt var til að óskað yrði eftir umsögn Vegagerðarinnar þar sem Hlíðarvegur er á forræði hennar. Umsögn Vegagerðar hefur borist.
Í erindi Vegagerðarinnar dags. 22. febrúar 2016, kemur fram að Vegagerðin samþykki ekki nýja tengingu lóðarinnar Hlíðarvegar 15 inn á stofnveginn Hlíðarveg. Á grundvelli niðurstöðu Vegagerðarinnar og samþykkts lóðablaðs frá 26. ágúst 1998 fyrir Hlíðarveg 15, samþykkir skipulagsnefnd ekki umsókn um breytta aðkomu að lóðinni.  
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. 
1503007Nýbýlavegur – Tillögur að deiliskipulagi
Lagðar fram til kynningar og umræðu tillögur að deiliskipulagi íbúðabyggðar við Nýbýlaveg, Hvolsvelli. 
Skipulagsnefnd fer yfir þrjár tillögur, A,B og C að fyrirkomulagi íbúðabyggðar við Nýbýlaveg. Skipulagsnefnd leggur til að haldið verði áfram að þróa tillögu C. Nefndin mælist til þess að tillagan verði orðin klár til umfjöllunar fyrir næsta fund. 
Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar. 
1502019Básar – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga ásamt stefnumörkun, umhverfisskýrslu og yfirlitsuppdrætti. Deiliskipulagið tekur til um 38 ha. svæðis í Básum, Goðalandi. Svæðið nær yfir núverandi aðstöðu Útivistar, óbyggðs svæðis til austurs frá þeirri aðstöðu og austur að Strákagili. Afmarkaðar eru 6 misstórar þjónustulóðir. Sýndur er byggingarreitur fyrir hverja lóð. Í stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið er gerð grein fyrir svæðinu, þ.e. forsendum skipulagsins og mati á völdum stefnumiðum í umhverfisskýrslu. Í bréfi dags. 4. desember 2015 gerir Skipulagsstofnun athugasemd við að auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins verði birt í b-deild Stjórnartíðinda vegna athugasemda stofnunarinnar við tillöguna. Skipulagsfulltrúi, sveitarstjóri, formaður skipulagsnefndar og skipulagsráðgjafar áttu fund með Skipulagsstofnun 3. febrúar 2016. Brugðist hefur verið við athugasemdum Skipulagsstofnunar með óverulegum breytingum á deiliskipulagstillögu. 
Skipulagsnefnd fjallar um athugasemdir Skipulagsstofnunar. Komið hefur verið á móts við athugasemdirnar með óverulegum breytingum á tillögunni. Gert er grein fyrir núverandi byggingarmagni á svæðinu. Frekari skilmálar hafa verið settir fyrir nýbyggingar á svæðinu. Dæmisnið fyrir hús í brekkufæti hefur verið bætt á uppdrátt. Deiliskipulagstillagan er byggð á stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið sem samþykkt var í byggðarráði Rangárþings eystra 13. ágúst 2015. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillögu og mælist til þess að tillagan með áorðnum óverulegum breytingum verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  
Sveitarstjórn samþykkir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillögu með áorðnum óverulegum breytingum og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
1502018Langidalur/Slyppugil – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga ásamt stefnumörkun, umhverfisskýrslu og yfirlitsuppdrætti. Deiliskipulagið tekur til um 13 ha. svæðis í Langadal og Slyppugili. Svæðið nær yfir núverandi aðstöðu Ferðafélags Íslands og austur fyrir aðstöðu Farfugla í Slyppugili. Afmarkaðar eru 2 þjónustulóðir fyrir gistiskála og þjónustuhús fyrir ferðamenn, ásamt svæði fyrir tjaldsvæði. Afmörkuð er lóð fyrir núverandi aðstöðu Skógræktarinnar. Byggingarreitir eru sýndir á hverri lóð. Í stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið er gerð grein fyrir svæðinu, þ.e. forsendum skipulagsins og mati á völdum stefnumiðum í umhverfisskýrslu. Í bréfi dags. 4. desember 2015 gerir Skipulagsstofnun athugasemd við að auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins verði birt í b-deild Stjórnartíðinda vegna athugasemda stofnunarinnar við tillöguna. Skipulagsfulltrúi, sveitarstjóri, formaður skipulagsnefndar og skipulagsráðgjafar áttu fund með Skipulagsstofnun 3. febrúar 2016. Brugðist hefur verið við athugasemdum Skipulagsstofnunar með óverulegum breytingum á deiliskipulagstillögu. 
Skipulagsnefnd fjallar um athugasemdir Skipulagsstofnunar. Komið hefur verið á móts við athugasemdirnar með óverulegum breytingum á tillögunni. Gert er grein fyrir núverandi byggingarmagni á svæðinu. Frekari skilmálar hafa verið settir fyrir nýbyggingar á svæðinu. Dæmisnið fyrir hús í brekkufæti hefur verið bætt á uppdrátt. Deiliskipulagstillagan er byggð á stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið sem samþykkt var í byggðarráði Rangárþings eystra 13. ágúst 2015. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillögu og mælist til þess að tillagan með áorðnum óverulegum breytingum verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  
Sveitarstjórn samþykkir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillögu með áorðnum óverulegum breytingum og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
1502017Húsadalur – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga ásamt stefnumörkun, umhverfisskýrslu og yfirlitsuppdrætti. Deiliskipulagið tekur til um 30 ha. svæðis í Húsadal, auk göngubrúar yfir Markarfljót og aðkomu að henni. Afmarkaðar eru 9 mis stórar lóðir. Sýndur er byggingarreitur fyrir hverja lóð. Á þremur lóðum er gert ráð fyrir plássfrekri starfsemi auk bygginga, s.s. tjaldsvæði, afþreyingarsvæði eða aðstöðu fyrir hestaferðir. Í stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið er gerð grein fyrir svæðinu, þ.e. forsendum skipulagsins og mati á völdum stefnumiðum í umhverfisskýrslu. Í bréfi dags. 4. desember 2015 gerir Skipulagsstofnun athugasemd við að auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins verði birt í b-deild Stjórnartíðinda vegna athugasemda stofnunarinnar við tillöguna. Skipulagsfulltrúi, sveitarstjóri, formaður skipulagsnefndar og skipulagsráðgjafar áttu fund með Skipulagsstofnun 3. febrúar 2016. Brugðist hefur verið við athugasemdum Skipulagsstofnunar með óverulegum breytingum á deiliskipulagstillögu. 
Skipulagsnefnd fjallar um athugasemdir Skipulagsstofnunar. Komið hefur verið á móts við athugasemdirnar með óverulegum breytingum á tillögunni. Sett eru inn ákvæði um verndun birkis eða mótvægisaðgerðir þar sem raska þarf birki. Hnykkt er betur á kvöðum um að finna skuli nýtt vatnsból, áður en byggt er á lóðum H7/H8. Felldur er út texti þar sem fjallað er um bílastæði norðan göngubrúar. Áfram verður gert ráð fyrir sorpsvæði við varnargarð og einnig áningarhólfi fyrir hross og afmörkuð leið, bæði vegur og reiðleið, sem sýnd er á uppdrætti. Byggingarreitir á lóðum H1, H2, H4, H5, H7 og H8 eru minnkaðir. Lóðir H1 og H2 eru minnkaðar. Dregið úr heimilu byggingarmagni á lóðunum H1, H2 og H5.  Gert er grein fyrir núverandi byggingarmagni á svæðinu. Frekari skilmálar hafa verið settir fyrir nýbyggingar á svæðinu. Dæmisnið fyrir hús í brekkufæti hefur verið bætt á uppdrátt. Deiliskipulagstillagan er byggð á stefnumörkun fyrir Þórsmerkursvæðið sem samþykkt var í byggðarráði Rangárþings eystra 13. ágúst 2015. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillögu og mælist til þess að tillagan með áorðnum óverulegum breytingum verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  
Sveitarstjórn samþykkir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillögu með áorðnum óverulegum breytingum og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

1411012Hellishólar – Deiliskipulagsbreyting
Deiliskipulagsbreytingin tekur til nánari skilgreininga á tjaldsvæði þar sem eru langtíma stæði fyrir hjólhýsi. Einnig gerir breytingin ráð fyrir að frístundalóðunum Réttarmói 1 og 3 verði breytt í íbúðarhúsalóðir. Í bréfi dags. 5. febrúar 2016 gerir Skipulagsstofnun athugasemdir við að auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar verði birt í b-deild Stjórnartíðinda vegna athugasemda stofnunarinnar við tillöguna. 
Skipulagsnefnd tekur ekki undir athugasemdir Skipulagsstofnunar. Nefndin hefur nú þegar komið rökstuddum skoðunum sínum á framfæri í bréfi dags. 20. janúar 2016. Að mati nefndarinnar er deiliskipulagstillagan í fullu samræmi við þágildandi og núgildandi aðalskipulag Rangárþings eystra. Skipulagsnefnd samþykkir framkomna deiliskipulagsbreytingu fyrir Hellishóla og mælist til þess að auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar verði birt í b- deild Stjórnartíðinda.  
Sveitarstjórn samþykkir bókun nefndarinnar. Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og að hún verði auglýst í b-deild Stjórnartíðinda. 
1405009Lambafell – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan tekur til hluta jarðarinnar Lambafells, Austur-Eyjafjöllum. Tillagan tekur til fyrirhugaðrar verslunar- og þjónustulóðar innan jarðarinnar. Tillagan gerir ráð fyrir byggingu 150-180 herbergja hótels að hámarki 9000m², að hluta til á þremur hæðum. Einnig gerir tillagan ráð fyrir byggingu sundlaugar og heitra potta á lóðinni. Í bréfi dags. 5. nóvember 2015 gerir Skipulagsstofnun athugasemdir við að auglýsing um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar verði birt í b-deild Stjórnartíðinda vegna athugasemda stofnunarinnar við tillöguna. 
Skipulagsnefnd fjallar um athugasemdir Skipulagsstofnunar. Komið hefur verið á móts við athugasemdir stofnunarinnar með óverulegum breytingum á skipulagstillögu. Gert er betur grein fyrir neysluvatni og fráveitu. Bætt hefur verið við skýringaruppdrætti við tillöguna. Leiðréttingar hafa verið gerðar varðandi hæð bygginga og fjölda herbergja. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillögu og mælist til þess að tillagan með áorðnum óverulegum breytingum verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  
Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillögu og að tillagan með áorðnum óverulegum breytingum verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.   
 
1603018Hólmar – Landskipti
Axel Þór Sveinbjörnsson kt. 090772-4229 og Silja Ágústsdóttir kt. 161273-3849, óska eftir því að skipta 250,8 ha landi úr jörðinni Hólmar ln. 163870, skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. dags. 4. mars 2016. Hið útskipta land fær heitið Önundarstaðir. Lögbýlisréttur mun áfram fylgja Hólmum ln. 163870. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin. 
Sveitarstjórn samþykkir landskiptin. 
Fundargerð 40. fundar skipulagsnefndar samþykkt í heild sinni. 

8.1603004 Athugun á lagningu ljósleiðara í dreifbýli. Jóhann Sigurþórsson frá IceCom ehf. fer yfir tillögu fyrirtækisins.


Fundargerðir:
1.1603017 3. fundur Markaðs- og atvinnumálanefndar Rangárþings eystra 01.03.16. Samþykkt samhljóða.
2.1603022 10. fundur Jafnréttisnefndar Rangárþings eystra. Samþykkt samhljóða.
3.1603019 Fundargerð fundar í starfsnefnd vegna móttökuáætlunar 27.01.16. Samþykkt samhljóða.
4.1602118 31. fundur Félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu 22.02.16. Samþykkt samhljóða.
5.1603020 17. fundur stjórnar byggðarsamlagsins Bergrisans bs. 03.03.16. Samþykkt samhljóða.
6.1603024 170. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands. Samþykkt samhljóða.

Mál til kynningar:
1.1603016 Brunavarnir Rangárvallasýslu: v. slökkvistjóra.
2.1603014 836. stjórnarfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.
3.1603002 Styrkur úr Landbótasjóði 2016.
4.1602116 Sýslumaðurinn á Suðurlandi, leyfisbréf vegna gistingu á Breiðabólsstað.
5.1603003 Styrktarsjóður EBÍ 2016. 
6.1601023 Skógaveitan: Kæra til yfirskattanefndar.
7.1603015 XXX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga: dagskrá
8.1602130 Aukavinna sveitarstjórnarmanna.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:00


____________________              _______________________
Lilja Einarsdóttir      Ísólfur Gylfi Pálmason
   
                            
______________________             ________________________
Þórir Már Ólafsson   Jóhanna Gunnlaugsdóttir
                                                                 

_______________________                    _______________________    
Birkir A. Tómasson               Sigríkur Jónsson


_______________________  
Christiane L. Bahner