164. fundur Byggðarráðs Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 14. september kl. 08:10.

Mætt: Benedikt Benediktsson, varamaður Lilju Einarsdóttur, Birkir Arnar Tómasson,  Árný Lára Karvelsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi, sem ritaði fundargerð og Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri og formaður byggðarráðs, sem setti fund og stjórnaði honum.

Formaður byggðarráðs bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Formaður biður um að bætt sé í fundargerðir lið 3, 45. fund félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu.
Gengið var til formlegrar dagskrár:

Dagskrá:

Erindi til byggðarráðs:
1.1709010 Sumar- og helgardvöl fatlaðra barna og ungmenna í Reykjadal: þátttaka í kostnaði:  Formaður byggðarráðs kynnti erindið. Kostnaðarþátttaka sveitarfélagsins er kr. 49.000 en einn fatlaður einstaklingur úr sveitarfélaginu nýtti þessa þjónustu Styrktarfélags lamaðra. Samþykkt samhljóða að greiða upphæðina byggðarráð lýsir yfir ánægju sinni yfir þessari starfsemi. 

2.1709011 SASS ársþing 2017: Kjörbréf. Formaður byggðarráðs lagði fram eftirfarandi tillögu um fulltrúa sveitarfélagsins á Ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélags sem haldið verður á Selfossi dagana 19. og 20. október n.k.

Aðalfundur SASS 2017
Aðalmenn                                         Varamenn
Lilja Einarsdóttir    Ísólfur Gylfi Pálmason
Benedikt Benediktsson                     Þórir Már Ólafsson
Guðmundur Viðarsson                      Birkir Arnar Tómasson
Christiane L. Bahner                         Guðmundur Ólafsson

Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
Aðalmenn                                         Varamenn
Lilja Einarsdóttir    Ísólfur Gylfi Pálmason
Benedikt Benediktsson                     Þórir Már Ólafsson
Guðmundur Viðarsson                      Birkir Arnar Tómasson
Christiane L. Bahner                         Guðmundur Ólafsson


3.1709024 Tillaga um fulltrúa varðandi rekstrarfélag um svæðið við Seljalandsfoss og Hamragarða: Formaður sagði frá fundi sem haldinn hefur verið með Landeigendafélagi Seljalandsfoss. Í bígerð er að Sveitarfélagið Rangárþing eystra og Landeigendafélag Seljalandsfoss myndi sameiginlegt rekstrarfélag um framkvæmdir og rekstur við Seljalandsfoss og Hamragarðasvæðið. 

Samþykkt að fulltrúar sveitarfélagsins verði Ísólfur Gylfi Pálmason og Guðmundur Viðarsson. Áður hefur Landeigendafélag við Seljalandsfoss tilnefnt Kristján Ólafsson og Jón Gunnar Aðils sem fulltrúa sína. Anton Kári  Halldórsson skipulagsfulltrúi verður undirbúningsnefndinni til aðstoðar

4.1709014 52. fundur skipulagsnefndar Rangárþings eystra. 12.09.2017.

SKIPULAGSMÁL:
1.1709023Kirkjulækjarkot 1, Kirkjulækjarkot 1G – Landskipti
Már Guðnason kt. 141245-3689, óskar eftir því að skipta 2647 m² lóð úr jörðinni Kirkjulækjarkot 1 ln.164034, skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. dags. 22. maí 2017. Óskað er eftir því að hin nýja lóð fái heitið Kirkjulækjarkot 1G.  Lögbýlisréttur mun áframa fylgja Kirkjulækjarkoti 1 ln. 164034. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á lóðinni. 
Byggðarráð samþykkir landskiptin og heitið á lóðinni. 

2.1709022Litli-Moshvoll lóð – Nafnabreyting
Matthías Loftsson kt. 300355-3909, óskar eftir því að breyta heiti lóðarinnar Litli-Moshvoll lóð, ln. 164262, í Sunnutún. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við heitið á lóðinni.
Byggðarráð samþykkir heitið á lóðinni. 

3.1709021Hvolstún 19 – Lóðarumsókn
Sigurður Ágúst Guðjónsson, sækir um að fá úthlutað lóðinni Hvolstún 19, undir byggingu íbúðarhúss. 
Skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar.
Byggðarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.  

4.1709020Hesteyrar – Fyrispurn vegna skipulags
Baldur Eiðsson kt. 050672-6039 óskar eftir álit nefndarinnar á breytingu spildna sem bera heitið Hesteyrar í Vestur-Landeyjum í stórar íbúðarhúsalóðir.  
Skipulagsnefnd tekur vel í erindið. Nefndin óskar eftir frekari gögnum er varða fyrirhugaða uppbyggingu. Áður hefur verið óskað eftir áliti nefndarinnar vegna breytinga á umræddum spildum í frístundalóðir. Þeirri umsögn var hafnað á grundvelli aðalskipulags Rangárþings eystra. Skipulagsnefnd telur vænlegra að breyta lóðunum í einskonar búgarðarbyggð. Nauðsynlegt er að gera breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra og vinna deiliskipulag fyrir svæðið. 
Byggðarráð staðfestir bókun skipulagsnefndar.  

5.1709019Kvoslækur – Deiliskipulag
Oddur Hermannsson f.h. Kvoslækjar ehf. kt. 550301-2290, óskar eftir heimild til að vinna deiliskipulag fyrir íbúðasvæði á jörðinni Kvoslækur. Deiliskipulagstillagan tekur til um 40ha lands úr jörðinni. Tillagan gerir ráð fyrir byggingu allt að 8 íbúðarhúsa á um 5ha lóðum hver. Heimilt verður að byggja íbúðarhús, gestahús og geymslu. Nýtingarhlutfall lóða verður 0,01 í samræmi við aðalskipulag Rangárþings eystra.  
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsgerð verði heimiluð. Nefndin telur ekki ástæðu til meðferðar skv. 1. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem að allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  
Byggðarráð heimilar deiliskipulagsgerð. Byggðarráð telur ekki ástæðu til meðferðar skv. 1. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem að allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Byggðarráð samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  

6.1709018Lífland – Umsókn um leyfi fyrir skilti
Hlynur Elfar Þrastarson f.h. Líflands ehf. kt. 501075-0519, sækir um leyfi fyrir uppsetningu á skilti við gatnamót Dufþaksbrautar og þjóðvegar nr. 1. Um er að ræða skilti til auglýsingar á verslun Líflands við Ormsvöll. Stærð skiltisins verður 1,5m * 1,5m. 
Skipulagsnefnd samþykkir til bráðabirgða veitingu leyfis fyrir skiltinu. 
Byggðarráð fer fram á að skiltið verði ekki stærra en þau skilti sem nú þegar eru á viðkomandi stað. Byggðarráð staðfestir bókun skipulagsnefndar. 

7.1709017Sámsstaðir 1 lóð 2 – Aðalskipulagsbreyting
Oddur Hermannsson f.h. Emils Guðfinnar Hafsteinssonar kt. 170866-4019, óskar eftir heimild til að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra. Breytingin tekur til lóðarinnar Sámsstaðir 1 lóð 2 ln. 203798, þar sem að landnotkun yrði breytt úr frístundabyggð í landbúnaðarland. Breytingin er gerð til að unnt sé að eiga lögheimili á umræddri lóð. 
Skipulagsnefnd hafnar beiðninni. 
Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar. 

8.1709016Kirkjulækjarkot 1, Mýrarvegur – Landskipti
Már Guðnason kt. 141245-3689, óskar eftir því að skipta lóðunum Mýrarvegur 4-7 úr jörðinni Kirkjulækjarkot 1 ln.164034, skv. meðfylgjandi uppdrætti unnum af Landnot ehf. dags. 12. desember 2016. Stofnun lóðanna er í samræmi við samþykkt deiliskipulag.  Lögbýlisréttur mun áframa fylgja Kirkjulækjarkoti 1 ln. 164034. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitið á lóðunum. 
Byggðarráð samþykkir landskiptin og heitið á lóðunum. 

9.1709015Sámsstaðir 1 lóð – Samruni lóða og breytt heiti
Helgi Jóhannesson kt. 041063-5219, óskar eftir því að lóðirnar Sámsstaðir 1 lóð ln.193586 og Sámsstaðir land 1 ln.217195 verði sameinaðar og heiti breytt í Eystri-Sámsstaðir ln. 193586. Meðfylgjandi umsókn er samrunauppdráttur unnin af Landnot ehf. dags. 4. september 2017. 
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við samrunan og heitið á lóðinni. 
Byggðarráð samþykkir samruna lóðanna og breytt heiti. 

10.1708045Gunnarsgerði – Lóðaumsóknir
Lóðir í Gunnarsgerði, Hvolsvelli hafa verið auglýstar lausar til úthlutunar. Umsóknarfrestur var til 20. ágúst 2017. Alls bárust 28 umsóknir um lóðirnar. 
Lagt fram til kynningar.  
Við úthlutun lóða er farið eftir samþykkt um úthlutun lóða í Rangárþingi eystra frá 16. ágúst 2007. Þar sem að fleiri en einn umsækjandi er um flestar lóðirnar, verður því dregið um úthlutun að viðstöddum fulltrúa sýslumanns. Helga Hrönn Karlsdóttir er mætt til fundarins sem fulltrúi sýslumanns. Byggðarráð áréttar að þegar umsækjandi hefur verið dregin og hlotið lóð, mun umsókn hans ekki gilda fyrir aðrar óúthlutaðar lóðir. Fyrir hverja lóð verða dregnir út þrír umsækjendur og eru því tveir til vara, þiggi sá sem hlýtur úthlutun ekki lóðina. 

Gunnarsgerði 1a – 1d úthlutað til: Stjörnumót ehf.
Gunnarsgerði 3a – 3c úthlutað til: Einhyrningur ehf.
Gunnarsgerði 4a – 4c úthlutað til: Jón Páll Sveinsson.
Gunnarsgerði 5a – 5b úthlutað til: Kristín Heimisdóttir.
Gunnarsgerði 6a – 6b úthlutað til: Páll Jóhannsson.
Gunnarsgerði 7a – 7b úthlutað til: Hvítmaga ehf.
Gunnarsgerði 8 úthlutað til: Enginn umsækjandi.
Gunnarsgerði 9 úthlutað til: Unnur Brá Konráðsdóttir.
Gunnarsgerði 10 úthlutað til: Þórir Guðjónsson.

Byggðarráð samþykkir ofantaldar lóðaúthlutanir. 

11.1703061Brú – Deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan tekur til eins byggingarreits innan jarðarinnar þar sem gert er ráð fyrir núverandi byggingum, ásamt 12 nýjum smáhýsum til útleigu fyrir ferðamenn. Tillagan var auglýst frá 12. júní 2017, með athugasemdafresti til 24. júlí 2017. 
Tvær athugasemdir bárust á auglýsingartíma. Önnur athugasemd snýr einungis að ásýnd bygginganna. Brugðist hefur verið við henni með því að setja kvaðir á litaval smáhýsanna í greinargerð deiliskipulagsins. Hin athugasemdin snýr að ásýnd og málsmeðferð. Skipulagsnefnd bendir á að málsmeðferð hafi í einu og öllu farið eftir ákvæðum skipulagslaga. Einnig bendir nefndin á að umrædd tillaga að deiliskipulagi er í fullu samræmi við gildandi aðalskipulag Rangárþings eystra 2012-2024, en þar koma fram skýrar heimildir varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu á landbúnaðarlandi. 
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Byggðarráð staðfestir bókun nefndarinnar. Byggðarráð samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

12.1610082Miðdalur – Deiliskipulag
Steinsholt sf. fyrir hönd landeigenda leggur fram deiliskipulagstillögu fyrir tvær lóðir úr jörðinni Miðdal. Tillaga að deiliskipulagi fyrir umræddar lóðir hefur verið til meðferðar að undanförnu. Lýsing var auglýst og gerðu nágrannar og Skipulagsstofnun athugasemd við hana. Því hefur verið brugðist við og tillagan endurgerð. Tillagan gerir ráð fyrir að á hvorri lóð verði heimilt að byggja íbúðarhús, gestahús og geymslu/bílskúr skv. ákvæðum í aðalskipulagi Rangárþings eystra. 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsgerð verði heimiluð. Nefndin telur ekki ástæðu til meðferðar skv. 1. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem að allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Byggðarráð heimilar deiliskipulagsgerð. Byggðarráð telur ekki ástæðu til meðferðar skv. 1. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem að allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Byggðarráð samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010  

13.1606016Yzta-Bæli – Ósk um heimild til deiliskipulagsgerðar
Landeigendur Yzta-Bælis, Rangárþingi eystra hafa óskað eftir heimild til deiliskipulagsgerðar. Beiðni þeirra hefur áður verði til umfjöllunnar hjá skipulagsnefnd og sveitarstjórn Rangárþings eystra og verið hafnað. Með erindi sínu nú óska landeigendur eftir því að afstaða sveitarfélagsins verði endurskoðuð á grundvelli þess er kemur fram í umsókninni.  
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsgerð verði heimiluð. 
Byggðarráð heimilar deiliskipulagsgerð. 

14.1511092Hvolsvöllur miðbær – Deiliskipulag
Rangárþing eystra hefur verið að vinna að breytingu á deiliskipulagi fyrir miðbæjarsvæðið á Hvolsvelli. 
Lagt fram til kynningar.   
Lagt fram til kynningar. 


Fundargerðir:
1.1709009 852. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga. 01.09.2017. Staðfest.
2.1709012 190. fundur stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. 24.08.2017. Fundargerðin staðfest. 
3.1709037 45. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu. Staðfest.

Mál til kynningar:
1.1509072 Rauðsbakki: Lausn úr landbúnaðarnotum: Leiðrétting frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
2.1602119 Rekstrarleyfi: Skúrinn, Varmahlíð.
3.1709008 Rekstrarleyfi: Hótel UMI, Rauðsbakka.
4.1708009 Rekstrarleyfi: Country Hótel Anna, Moldgnúp

Fleira ekki rætt fundi slitið kl. 9:14


____________________              _______________________
Benedikt Benediktsson                  Ísólfur Gylfi Pálmason

                                  
______________________          
Birkir Arnar Tómasson