FUNDINUM HEFUR VERIÐ FRESTAÐ FRAM Í SEPTEMBER. 
Nánari tímasetning auglýst síðar

 

Þverpólitísk nefnd sem vinnur að tillögum um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu boðar til opins fundar um vinnu nefndarinnar.
Á fundinum verður farið yfir verkefni nefndarinnar fram til þessa, ásamt því að ræða lokaskrefin í vinnu hennar.
Nefndin mun skila lokaskýrslu með tillögum sínum til umhverfis- og auðlindaráðherra í september næstkomandi.

Fundurinn er öllum opinn og fer fram á Stracta Hotel á Hellu 21. ágúst næstkomandi.
Fundurinn hefst kl. 12:15 og áætlað er að honum ljúki 13:45.
Boðið verður upp á súpu.