Greiningarfundir á ljósmyndum í Goðalandi í Fljótshlíð annan hvern föstudag kl 10:00.

Á fundunum verður lögð áhersla á að greina fólk, staði og fleira á ljósmyndum úr safni Ottó Eyfjörð sem starfaði sem ljósmyndari í Rangárvallasýslu. Fundirnir verða eftirfarandi daga:

27. janúar

10. febrúar

24. febrúar

10. mars

Á fundum varpar starfsmaður skjalasafnsins ljósmyndum upp á tjald og leitar eftir aðstoð fundargesta við að greina efni myndanna. Allir velkomnir.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands

Héraðsskjalasafn Árnesinga