Föstudaginn 1. október nk. verður frítt í líkamsræktina í íþróttahúsinu milli klukkan 10-12. Þar mun Anna Rún Einarsdóttir, íþróttafræðingur, taka á móti gestum og leiðbeinir þeim sem vilja með tækin í ræktinni og gefur góð ráð fyrir líkamsrækt.

Þessi tími er hluti af Heilsueflandi hausti sem stendur yfir frá 20. september - 17. október. Fylgist með á heimasíðu Rangárþings eystra eftir frekari viðburðum.