Vinnuskóli Rangárþings eystra hefst mánudaginn 3.júní 2013 kl.9:00. Unglingar sem fæddir eru 1997-2000 og hafa áhuga á því að starfa við vinnuskólann á komandi  sumri er bent á að senda inn umsóknir fyrir 27.maí n.k. Vinnan verður frá kl.9-16 en krakkar fæddir 2000 fá vinnu 9-12 eða 13-16. Eyðublöð er að finna á hvolsvollur.is/stjornsysla/eydublod/ einnig má hafa samband við skrifstofu sveitafélagsins í síma 488-4200, þar sem tekið verður við umsóknum í síma. 

Ólafur Örn Oddsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Rangárþings eystra.