Laugardagurinn 10. maí 2014 er viðmiðunardagur kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninganna sem hafa verið auglýstar þann 31. maí n.k., sbr. http://www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar-2014/frettir-2014/nr/8624   

Kosningarétt við sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí 2014 eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, 10. maí 2014.
Einnig eiga kosningarétt danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, sem og aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, enda hafi þeir náð 18 ára aldri á kjördag og eiga skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, 10. maí 2014.

Íslenskir ríkisborgarar sem stunda nám á hinum Norðurlöndunum, og sem þurft hafa að flytja lögheimili sitt þangað vegna ákvæða samnings Norðurlandanna um almannaskráningu, glata ekki kosningarétti sínum vegna þess. 

Þjóðskrá Íslands vill af þessu tilefni minna á nauðsyn þess að íbúaskráningin sé sem réttust. Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 10. maí 2014 mun ekki hafa áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast okkur í síðasta lagi 9. maí eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.