Ríkistjórnin úthlutar 850 milljónum til brýnna verkefna á ferðamannastöðum og þar af 19 milljónum í Rangárþing eystra.


Í tilkynningu frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu kemur fram að til að tryggja að íslensk náttúra og öflug ferðaþjónusta geti blómstrað samtímis hefur ríkisstjórnin samþykkt að verja í sumar 850 milljónum króna til brýnna uppbyggingar- og verndaraðgerða á ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón ríkisins. Ráðist verður í 104 verkefni á 51 stað á landinu, auk þess sem viðbótarfé verður varið til aukinnar landvörslu um allt land. 

Verkefnin eru af ýmsum toga en megináhersla er lögð á framkvæmdir vegna göngustíga, útsýnispalla, bílastæða og salernisaðstöðu. Fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun fyrir þetta ár var unnin í samstarfi forsætisráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra. Kallað var eftir tillögum þeirra stofnana sem hafa umsjón með umræddum svæðum og í kjölfarið var verkefnum forgangsraðað í samræmi við faglegt mat á því hver þörfin væri. Fjármagnið mun renna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sem mun annast umsýslu og eftirlit með verkefnum sumarsins

Verkefni í Rangárþingi eystra eru eftirfarandi:

Seljavallalaug. Steypa þarf gólf í búningsklefum og fara í allsherjar steypuviðgerðir. Friðlýst kr. 5.000.000.-
Steinahellir.  Laga þarf helli, setja upp þil og bæta aðgengi og öryggi ferðamanna  kr. 4.000.000.-
Þórsmörk. Viðhald og merking göngustíga kr. 10.000.000.-

Auk þess fær stígagerð á Laugaveginum 17 milljónir.