Í gær, fimmtudaginn 19. maí, var haldin útskrift fyrir elsta hóp nemenda hjá Leikskólanum Örk. Útskriftin gekk með eindæmum vel og var salurinn nærri fullur og því mikil stemning.

Útskriftarnemendurnir sungu 3 lög undir stjórn Maríönnu Másdóttur en börnin hafa verið í tónlistarkennslu hjá henni 1x í viku í vetur. Börnin fengu svo greniplöntu sem Suðurlandsskógar gáfu og auðvitað ferilmöppuna sína sem safnað hefur verið í síðan þau byrjuðu í skólanum. 

Að lokum var boðið upp á skúffuköku og kaffi/djús.