Þessi frétt var tekin af síðunni DFS.IS


Nýstofnað Ungmennaráð Suðurlands kom saman í fyrsta sinn í síðustu viku. Um var að ræða fyrsta fund ráðsins og skiptu ungmennin með sér verkum á fundinum. Rúnar Guðjónsson úr Hrunamannahreppi var kjörinn formaður ráðsins og Jana Lind Ellertsdóttir úr Bláskógabyggð var kjörin varaformaður. Í ráðinu eiga sæti ungmenni frá öllum sveitarfélögum á Suðurlands, samtals 15.

Eftirtaldir aðilar eiga sæti í ráðinu;
1.Rúnar Guðjónsson formaður – Hrunamannahreppi
 Anna Marý Karlsdóttir varamaður – Hrunamannahreppi
2.Jana Lind Ellertsdóttir varaformaður – Bláskógabyggð
 Ástrós Pálmadóttir varamaður – Bláskógabyggð
3.Rebekka Rut Leifsdóttir – Rangárþingi ytra
 Dagný Rós Stefánsdóttir varamaður – Rángarþing- ytra
4.Þórunn Ösp Jónasdóttir – Árborg
 Sveinn Ægir Birgisson varamaður – Árborg
5.Kristrún Ósk Baldursdóttir – Rangárþingi eystra
 Ástríður Björk Sveinsdóttir varamaður – Rangárþingi eystra
6.Ragnar Óskarsson – Ölfusi
 Sandra Dís Þrastardóttir varamaður – Ölfusi
7.Arndís Ósk Magnúsdóttir – Hornafirði
 Jóhann Klemens Björnsson varamaður – Hornafirði
8.Davíð Ernir Kolbeins – Hveragerði
 Bryndís Jóna Gunnarsdóttir varamaður – Hveragerði
9.Íris Hanna Rögnvaldsdóttir – Skaftárhreppi
 Svanhildur Guðbrandsdóttir varamaður – Skaftárhreppi
10.Friðrik Magnússon – Vestmannaeyjum
 Sigríður Snæland varamaður – Vestamannaeyjum
11.Jón Martein Ásgrímsson – Grímsnes- og Grafningshreppi
 Kristrúnu Urði Harðardóttur varamaður – Grímsnes- og Grafningshreppi
12.Ástráður Unnar Sigurðsson – Skeiða- og Gnúpverjahreppi
 Mattías Bjarnason varamaður Skeiða- og Gnúpverjarhreppi
13.Katla Þráinsdóttir – Mýrdalshreppi
 Birna Sólveig Kristófersdóttir varamaður – Mýrdalshreppi
14.Agnes Björg Birgisdóttir – Flóahreppi
 Hólmar Höskuldsson varamaður Flóahreppi
15.Halla Rún Erlingsdóttir – Ásahreppi

Ungmennaráð fyrir heilan landshluta hefur ekki verið til á Íslandi áður og er því um merkilegt framtak að ræða hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) sem samþykktu á aðalfundi samtakanna í október 2016 að stofna slíkt ungmennaráð. Forsagan er sú að Ungmennaráð Árborgar stóð að vel heppnaðri ráðstefnu ungmennaráða á Suðurlandi í september 2016. Á ráðstefnunni fram kom sú hugmynd að gott væri að eiga betri vettvang fyrir ungmenni á Suðurlandi til að eiga reglulega samtal við stjórn SASS um málefni ungmenna og Suðurlands.

Ungmennaráð Suðurlands ræddi á sínum fyrsta fundi málefni sem snerta ungmenni og landshlutann með einum eða öðrum hætti. Ráðið samþykkti að vinna eftir því leiðarljósi að vera lausnamiðað í málefnum ungmenna. Ráðið starfar eftir samþykktu erindisbréfi þar sem fram kemur hlutverk ráðsins, en það er eftirfarandi;

– Að vekja athygli á málefnum ungs fólks á Suðurlandi.

– Að sýna frumkvæði og virka þátttöku með umræðum og athöfnum sem íbúar á Suðurlandi og öðlast þannig sterka rödd í samfélaginu að ákvörðunum sem snerta líf þeirra.

– Að auka jafningjafræðslu og styðja við ungmennaráð sveitarfélaganna á Suðurlandi.

– Að vera ráðgefandi fyrir stjórn SASS og funda með stjórninni a.m.k. einu sinni á ári.

– Að koma tillögum og ábendingum til stjórnar SASS um þau málefni sem ráðið telur skipta ungmenni á Suðurlandi máli.

– Að gæta hagsmuna ungmenna á Suðurlandi.

– Að stuðla að bættum skilyrðum fyrir ungmenni á Suðurlandi m.t.t. náms, velferðar, vinnu, tómstunda, menningarstarfs, samgangna og framtíðarbúsetu á Suðurlandi.

Ráðið ákváð að leggja áherslu á þrjú mál á sínum fyrsta sameiginlega fundi með stjórn SASS; húsnæðismál fyrir nemendur m.a. varðandi heimavist og einnig á almennum leigumarkaði. Úrbætur í almenningssamgöngum fyrir landshlutan. Og að lokum vildu þau kanna hver stefnan er með þróttamannvirkin á Laugavatni og hvort að SASS geti komið betur að málinu. Ráðið átti gott samtal við stjórnin um þessi mál og ýmis fleiri málefni. Næsti fundur ráðsins verður í september 2017. Með ungmennaráðinu starfa þau Gunnar E. Sigurbjörnsson tómstunda- og forvarnarfulltrúi, Gerður Dýrfjörð tómstunda- og félagsmálafulltrúi og Guðlaug Ósk Svansdóttir verkefnastjóri.

(Rúnar Guðjónsson)

Rúnar Guðjónsson formaður Ungmennaráðs Suðurlands.