Tumastaðaverkefni Hvolsskóla
Hvolsskóli og Skógrækt ríkisins hafa gert samning um að nemendur skólans koma í Tumastaðaskóg og vinna þar að grisjun, stígagerð og öðrum verkefnum í skóginum. Þau fá m.a. fræðslu og aðstöðu á Tumastöðum í staðinn. Verkefnið kalla þau Tumastaðaverkefnið og þegar fer að vora fer um helmingur nemanda í þessar ferðir, í ár eru það bekkir með slétta tölu sem fara. Í dag fór fyrsti hópurinn sem var 6. bekkur. Þau unnu í dag að stígagerð og höfðu þegar um hádegi gert um 200 metra að stíg um Tumastaðaskóg. Næst fer 10. bekkur og gerir þrjár nýjar brýr og í framhaldinu verða fleiri stígar gerðir og í þá borið trjákurl. Verkefnið er unnið undir handleiðslu Jóns Stefánssonar kennara. Í dag voru pylsur grillaðar í sól og blíðu enda er einstaklega veðursælt í Tumastaðaskógi og þangað eru allir velkomnir.