Tónleikar í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð.

Sunnudaginn 18. október kl. 15.00 halda Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og Richard Simm, píanóleikari, tónleika í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð, 10 km frá Hvolsvelli.

Á efnisskránni verða verk eftir Mozart, Bach og Brahms.

Tónleikarnir eru hluti af verkefninu Landsbyggðartónleikar, sem Félag íslenskra tónlistarmanna skipuleggur með styrk frá menntamálaráðuneytinu.

Miðaverð 2000 kr.