Næstkomandi sunnudag þ. 2. september halda Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og Richard Simm, píanóleikari, tónleika í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð.


Tónleikarnir hefjast kl. 15.00. Miðasala verður við innganginn en frítt er fyrir börn í fylgd fullorðinna.



Á efnisskránni verður Sónata nr. 1 í G-dúr eftir Johannes Brahms, Poeme élegiaque og Reve d‘enfant eftir Eugene Ysaÿe og þáttur úr Kvartett um endalok tímans eftir Olivier Messiaen.


Boðið verður upp á kaffi í hlénu.


Að loknum þessum tónleikum munu Rut og Richard taka verkin upp. Þar með ljúka þau upptökum fyrir þrjá geisladiska sem þau hafa unnið að undanfarin tvö ár. Fyrsti diskurinn með verkum eftir Mozart og César Franck kom út á síðasta ári. Hinir tveir diskarnir, annars vegar með öllum sónötum Brahms fyrir fiðlu og píanó og hins vegar geisladiskur með stuttum hugljúfum verkum eftir íslensk og erlend tónskáld, munu koma út á næstu árum.