Á Kjötsúpuhátíðinni sl. laugardag var tilkynnt um val á Sveitalistamanni Rangárþings eystra árið 2018 en það er menningarnefnd Rangárþings eystra sem stendur að valinu. Viðurkenningin var nú afhent í 5. sinn en gjaldgeng eru þeir einstaklingar eða hópar sem búa í sveitarfélaginu og hafa þótt skara fram í sinni list.

 Í ár var það Kristjana K. Jónsdóttir sem hlaut útnefninguna. Kristjana, eða Sjana, eins og hún er alltaf kölluð sigraði í prjónasamkeppni um Fullveldispeysuna sem haldin var í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins í ár. Peysan þótti afar falleg og í anda fullveldisins og á meðfylgjandi mynd má sjá Sjönu við hlið peysunnar.

Sjana gat því miður ekki tekið á móti verðlaununum en Silja Kjartansdóttir, dóttir hennar, tók við viðurkenningunni fyrir hennar hönd en það var Harpa Mjöll Kjartansdóttir, formaður menningarnefndar sem afhenti henni blóm og viðurkenningarskjal.