Svæðistónleikar NÓTUNNAR fyrir Kragann, Suðurland og Suðurnes voru haldnir í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 13. mars sl. Hópur nemenda frá Tónlistarskóla Rangæinga tók þátt í tónleikunum og stóðu sig afar vel.


Á myndina af hópnum vantar Írenu Víglundsdóttur söngnemanda,  Jens Sigurðsson gítarkennarar og Þórunni Elfu Stefánsdóttur söngkennara. 


Allir þátttakendur á svæðistónleiknum hlutu viðurkenningarskjal og stúlknakvartett frá skólanum hlaut sérstaka viðurkenningu og mun koma fram á Hátíðartónleikum í Norðurljósasal Hörpu þann 10. apríl. Er það sannarlega mikið gleðiefni fyrir Tónlistarskóla Rangæinga

Stúlknakvartettinn kemur fram á samspilstónleikum tónlistarskólans á morgun, þriðjudag 15. mars, ásamt fleiri nemendum skólans. Tónleikarnir hefjast kl. 17:00. Allir velkomnir!

---

NÓTAN - uppskeruhátíð tónlistarskóla var fyrst haldin skólaárið 2009-2010 og er árlegur viðburður í kerfi tónlistarskóla á Íslandi.

Uppskeruhátíðin er ný vídd í starfsemi tónlistarskóla. Hátíðin er í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna jafnt innan veggja þeirra sem utan.

Uppskeruhátíðin er þrískipt og skipulögð þannig að allir geti tekið þátt. Þátttakendur eru:

  •  frá öllu landinu,
  •  á öllum aldri og 
  •  á öllum stigum tónlistarnáms.