Ferðaþjónustufyrirtækið South Iceland Adventure fékk á dögunum viðurkenningu fyrir framúrskarandi þjónustu árið 2012 frá TripAdvisor. TripAdvisor er vefsíða þar sem milljónir ferðalanga koma saman til að gefa ýmsum aðilum ferðaþjónustunar einkunn. South Iceland Adventure fær hæstu einkunn hjá viðskiptavinum sínum sem telst einstaklega gott. Það er ljóst að ferðamannaiðnaðurinn í sveitarfélaginu á bjarta framtíð fyrir höndum sér þegar ferðaþjónustuaðilar skara framúr á þennan hátt.

http://www.tripadvisor.com hér má sjá vefsíðuna umræddu

http://www.siadv.is heimasíða South Iceland Adventure