Héraðsbókasafni Rangæinga barst á dögunum vegleg bókagjöf frá Símoni Oddgeirssyni Dalsseli. 

Hann færði safninu bókahillu með merkingu og í henni er:

Íslenskt fornbréfasafn frá 834-1589 16 bindi

Íslandsárbækur Espólíns 4 bindi 1821-1855

Manntal á Íslandi 1703

Landmannabók

Bækurnar eru allar í fullkomnu standi og er það ósk gefandans að bækurnar verði ekki lánaðar út úr safninu en að þær nýtist til rannsókna og fræða.

Símoni er þakkað kærlega fyrir höfðinglega gjöf.

Á myndinni er Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri ásamt Símoni Oddgeirssyni þegar hann afhenti Hérðasbókasafninu bókagjöfina.