Á sveitarstjórnarfundi sem haldinn var í gær, fimmtudag 10. maí, voru samþykkt samhljóða siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í Rangárþingi eystra.

Siðareglur kjörinna fulltrúa í Rangárþingi eystra

1. gr.
Markmið
Markmið þessara reglna er að skilgreina það hátterni og viðmót sem ætlast er til að kjörnir fulltrúar sýni af sér við störf sín fyrir hönd Rangárþings eystra. Reglurnar ná til kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa og annarra sem kjörnir eru til setu í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.

2. gr.
Starfsskyldur kjörinna fulltrúa

Kjörnir fulltrúar skulu í störfum sínum fylgja lögum, reglum og samþykktum Rangárþings eystra, sem og sannfæringu sinni. Þeim ber að starfa fyrst og fremst í þágu íbúanna og ber því að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum, hvort heldur er sínum eigin annarra einstaklinga eða einstakra hópa. Þeim ber að hafa í heiðri ítrustu kröfur um ráðvendni, heiðarleika og réttlæti í störfum sínum í þágu sveitarfélagsins.

Kjörnir fulltrúar skulu ávallt hafa í heiðri grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu í störfum sínum, þ.m.t. gagnsæja og upplýsta ákvarðanatöku, og framkvæma ekkert það sem er til þess fallið að vekja grunsemdir um að annað en lögmæt og málefnaleg sjónarmið ráði för við stjórn Rangárþings eystra.

3. gr.
Valdmörk

Kjörnir fulltrúar skulu gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum og virða verkaskiptingu í stjórnkerfi Rangárþings eystra. Þeir skulu sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa og starfsmanna Rangárþings eystra virðingu.

4. gr.
Hagsmunaárekstrar

Kjörnir fulltrúar nýta sér ekki stöðu sína í þágu einkahagsmuna sinna eða annarra sem eru þeim tengdir, hvort sem ávinningur af slíku kemur fram strax eða síðar, þ.m.t. eftir að störfum fyrir Rangárþing eystra lýkur.

Kjörnir fulltrúar skulu forðast hagsmunaárekstra í störfum sínum. Um hæfi þeirra við meðferð einstakra mála fer eftir 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

5.gr
Ábyrgð á fjármálum

Kjörnum fulltrúum ber að virða fjárhagsáætlun og grundvallarreglur um fjármálastjórnun til að tryggja réttmæta og ábyrga meðferð á almannafé. Við störf sín skulu kjörnir fulltrúar ekki aðhafast neitt sem getur falið í sér misnotkun á almannafé.

6. gr.
Gjafir og fríðindi

Kjörnum fulltrúum er óheimilt að þiggja greiðslur, gjafir eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönnum ef túlka má það sem endurgjald fyrir greiða.

7. gr.
Trúnaður

Kjörnum fulltrúum ber að virða trúnað um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og gæta ber trúnaðar um. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi. Kjörnum fulltrúum ber jafnframt að virða trúnað um ummæli einstakra fundarmanna á lokuðum fundum í nefndum og ráðum Rangárþings eystra, sem og um innihald skjala eða annarra gagna, sem þeir fá aðgang að vegna starfa sinna og trúnaður skal vera um, enda byggi hann á lögmætum og málefnalegum rökum.

8. gr.
Að virða hlutverk starfsmanna

Kjörnir fulltrúar skulu í störfum sínum virða hlutverk starfsmanna Rangárþings eystra. Þeir mega ekki hlutast til um að starfsmenn geri neitt það sem hefur þann tilgang að verða kjörnum fulltrúum á beinan eða óbeinan hátt til hagsmunalegs ávinnings, né heldur aðila nátengdum þeim eða ákveðnum hópum eða fyrirtækjum.

9. gr.
Stöðuveitingar

Kjörnum fulltrúum ber að koma í veg fyrir að einstaklingum sé veitt starf eða stöðuhækkun hjá sveitarfélaginu á öðrum forsendum en hæfni til að rækja starfið.

10. gr.
Miðlun siðareglna til kjörinna fulltrúa, starfsfólks og almennings

Kjörnir fulltrúar undirgangast þessar siðareglur með undirskrift sinni og lýsa því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðarljósi. Siðareglurnar skulu vera aðgengilegar starfsfólki sveitarfélagsins, almenningi og fjölmiðlum á heimasíðu Rangárþings eystra og annan þann hátt sem sveitarstjórn ákveður til að þessir aðilar geti gert sér grein fyrir meginreglum þeirra.

Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Rangárþings eystra 10.05.2012