FÉLAGSÞJÓNUSTA

RANGÁRVALLA- OG VESTUR SKAFTAFELLSSÝSLU

Suðurlandsvegur 1-3, 850  Hella     s. 487-8125

 

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu heldur utan um afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings sem sveitarfélögum er skylt að greiða samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 76/2016. Sérstakur húsnæðisstuðningur kemur þá í stað sérstakra húsaleigubóta. Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir samþykki umsóknar og fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings má sjá í reglum um sérstakan húsnæðisstuðning inn á heimasíðu Félagsþjónustunnar, www.felagsmal.is.

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15 – 17 ára námsmanna

Foreldrar 15 – 17 ára barna sem hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi eru minntir á að skila þarf inn nýrri umsókn í upphafi skólaárs. Umsóknir er hægt að nálgast á heimasíðunni felagsmal.is. Með umsóknum þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Athuga ber að sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára er samþykktur eina önn í senn og skila ber staðfestingu á áframhaldandi námi ungmennis við upphaf nýrrar annar. Íbúar í Mýrdalshrepp sækja um þann stuðning til sveitarfélags en umsóknar íbúa annarra sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu skulu berast til Félagsþjónustunnar.

Skila þarf umsóknum og fylgigögnum á skrifstofu félagsþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1 – 3, 850 Hellu eða á netfangið annette@felagsmal.is

Nýjar umsóknir þurfa að berast til Félagsþjónustunnar eigi síðar en 15. þess mánaðar sem sótt er um.