„þær – í tilefni 100 ára kosningaafmælis kvenna“.


Átta konur, bornar og barnfæddar í Rangárþingi eystra, sýna verk sýn á tveimur samsýningum í Gallerí Ormi í Sögusetrinu. Fyrri sýningin  hefur staðið yfir frá 5. júlí og mun seinni sýningin opna 9. ágúst og standa til 13. september 2015. Konurnar eiga það sameiginlegt, fyrir utan uppruna sinn, að þær luku námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í verkum þeirra má glöggt sjá sterkar rætur til æskustöðvanna. Sex þeirra eru úr Fljótshlíð, tvær úr Hvolhreppi.

Þær sem sýna eru:
Þórhildur Jónsdóttir frá Lambey, Katrín Óskarsdóttir frá Miðtúni, Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir frá V-Sámsstöðum, Þórdís Alda Sigurðardóttir frá V-Sámsstöðum, Katrín Jónsdóttir frá Lambey, Álfheiður Ólafsdóttir frá frá Kirkjulæk, Sigrún Jónsdóttir frá Lambey og Guðrún Le Sage De Fontenay frá Útgörðum.

þær sýna 5. júlí – 7. ágúst þær sýna 9. ágúst – 13. september
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir Álfheiður Ólafsdóttir
Sigrún Jónsdóttir Guðrún Le Sage De Fontenay
Þórdís Alda Sigurðardóttir Katrín Jónsdóttir
Þórhildur Jónsdóttir Katrín Óskarsdóttir