SASS hefur opnað starfsstöð á Hvolsvelli. Starfsstöð SASS mun vera á Ormsvelli 1, í sama húsnæði og skipulags- og byggingarfulltrúi sveitarfélagsins hefur aðsetur. Þjónusta SASS við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í landshlutanum snýr að ráðgjöf og styrkveitingum á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála. Á því sviði starfa einstaklingar sem hafa aðsetur á Höfn, í Vestmannaeyjum og á Selfossi og nú einnig Hvolsvelli. Tilkoma starfsstöðvar SASS á Hvolsvelli byggist að hluta til á því að starfsmaður SASS, Þórður Freyr Sigurðsson, er búsettur á Hvolsvelli. Þórður mun því hafa aðsetur þar að hluta en áfram að hluta á Selfossi. Starfsaðstaðan mun einnig nýtast öðrum starfsmönnum SASS sem allir vinna þvert á landshlutann, í fjölbreyttum verkefnum á sviði atvinnuþróunar og menningarmála.

Á myndinni má sjá þá Þorvarð Hjaltason, framkvæmdastjóra SASS, og Ísólf Gylfa Pálmason, sveitarstjóra Rangárþings eystra, undirrita leigusamning.