Í dag var samningur milli Rangárþings eystra og Reita hf. vegna kaupa á Austurvegi 4 undirritaður formlega. Það voru Ísólfur Gylfi, sveitarstjóri, Haukur Guðni, oddviti, og Ágúst Ingi, skrifstofustjóri sem undirrituðu samninginn fyrir hönd Rangárþings eystra en Arna Grímsdóttir fyrir hönd Reita hf.