Í byrjun árs 2012 tók Vilborg Arna Gissurardóttir til starfa sem rekstrarstjóri fyrir Kötlu jarðvang (Katla Geopark). Vilborg er með BA próf í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum og MBA frá Háskóla Íslands. Hún hefur fjölþætta reynslu af ferðamálum og markaðsmálum. Hún var verkefnisstjóri norrænu strandmenningarhátíðarinnar Sail Húsavík 2010-2011, verkefnisstjóri ferðamála hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga 2007-2010 og framkvæmdastjóri Markaðsráðs Þingeyinga 2008-2010.

Ekki liggur fyrir hvar á jarðvanginum Vilborg mun búa og hafa starfsstöð en það skýrist á næstu vikum. Netfang Vilborgar er vilborg@hfsu.is og vilborg@katlageopark.is og sími 692-1686.

Þetta kemur fram á vef Háskólafélags Suðurlands www.hfsu.is