Rangæingamót í frjálsum verður haldið sunnudaginn 26. apríl

í íþróttahúsinu á Hvolsvelli.

Kl.13:30 hefst keppni í aldursflokkum 10 ára og yngri.

Kl.14:30 hefst keppni í aldursflokkum 11 ára og eldri.

Öllum krökkum í Rangárþingi í þessum aldursflokkum er boðið til keppni.

Foreldrar eru sérstaklega velkomnir til að horfa á og rétta hjálparhönd við mótshaldið.  Margar hendur vinna létt verk.

Grillaðar verða pylsur fyrir þátttakendur í mótslok.

Krakkar í Rangárþingi, fjölmennum og skemmtum okkur með foreldrum og vinum.