Samtök sunnlenskra sveitarfélaga í samstarfi við þekkingarsetur á Suðurlandi og Markaðsstofu Suðurlands, veita ráðgjafaþjónustu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála og aðstoða við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Hægt er að hafa samband beint við ráðgjafa eða senda fyrirspurn eða ósk um ráðgjöf á netfangið radgjof@sudurland.is.

Gerður hefur verið samstarfssamningur við eftirfarandi stofnanir um ráðgjafaþjónustu:
•Háskólafélag Suðurlands
•Markaðsstofa Suðurlands
•Þekkingarsetrið  Vestmannaeyjum
•Kötlusetrið Vík í Mýrdal
•Nýheimar Höfn í Hornafirði

Þjónustan er gjaldfrjáls upp að ákveðnu marki. Gjaldfrjáls þjónusta miðast við almanaksárið og er allt að 7 klukkustundir fyrir einstaklinga og fyrirtæki og allt að 20 klukkustundir fyrir stofnanir.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu SASS